Ég var aðeins að dunda mér við það um helgina að bæta uppskriftarvefinn 🙂 Núna er hægt að senda uppskriftir í e-maili eða prenta þær beint út af vefnum. Ég er búin að vera að leita að slíkum “plugin” viðbótum, sem ég er sátt við, í þónokkurn tíma. Ég hef alltaf fundið e-ð að þeim…
Month: January 2008
Nútíma aumingi
ég heyrði þetta nýyrði áðan og er að bræða með mér – hvað þýðir þetta ???
suma daga
tekst manni að koma ótrúlega mörgu í verk… Í dag tókst okkur að betrumbæta svefnherbergið í nokkrum liðum, eitthvað sem búið er að standa til í þónokkurn tíma. Við t.d. færðum til kommóðu, rúmið og náttborðin okkar festum upp ljós við rúmið festum loksins upp stóra spegilinn í svefnherberginu löguðum rúllugardínuna (þar sem snillinn sem setti hana upp upphaflega setti hana upp vitlaust) festum líka loksins upp gardínustöngina í…
hvað er Facebook?
jahá!
það er bara allt að gerast…
ég er svo rík…
Strákarnir mínir að fíflast saman… Oliver litli grallaraspóinn minn 😉
lítil
Það er svo margt búið að vera að brjótast inní mér undanfarið – flest af því á ekkert heima hérna inni og þ.a.l. hef ég auðvitað ekki verið að tjá mig um það hér. Stundum finnst mér ég taka hluti inn á mig sem ég ætti etv ekki að láta snerta mig, en einhverra hluta vegna gera þeir það. Ég veit í rauninni upp á mig sökina en sumt af þessu truflar mig pínu og sumt mun meira en það… æj ég er sennilegast bara að blaðra en stundum festast svona hlutir í kollinum á manni og valda því að maður hugsar of…
mont!
Við gleymum alltaf að monta okkur… Leifur fékk bréf fyrir helgi þar sem honum var formlega tilkynnt að Iðnaðarráðuneytið hefði samþykkt umsóknina hans um að fá að kalla sig Byggingarverkfræðing 😉 Núna er komið upp plagg í ramma á vegg 😉 Til hamingju Leifur minn :kiss: :love: