nú þegar fer að líða að því að við komum heim (mánaðarmótin maí/júní) þá fér ég að átta mig á því að ég á virkilega eftir að sakna litla endaraðhússins í Holte… það er svo margt hérna sem mér þykir vænt um.. mér finnst einmitt vorið vera svo skemmtilegur árstími.. allt að lifna við.. hlusta á íkornana trítla eftir þakinu *Heh* það er eiginlega bara fyndið.. eplatréin í garðinum, það er líka svo stutt út í náttúruna hérna… skógur sem er reyndar mýrarfen *HEh* en samt allur út í göngustígum, við erum sko enganvegin búin að rölta þá alla.. bara pínu lítið brot af þeim.
ég og Leifur vorum einmitt að tala um þetta um daginn.. við eigum pottþétt eftir að koma hingað í einhverju nostalgíu kasti eftir einhver ár.. taka lest frá Hovedbane til Holte station og labba þaðan og hingað í Vejledalinn. Stelast til að gægjast inn í garðinn og rifja upp minningar.
fyndið.. við erum ekki einusinni flutt héðan.
btw sit úti í garði með tölvuna, að lesa og hlusta á íslenska tónlist…