ég veit ekki alveg með þetta..
held einhvernvegin að ég haldi mig við ofnæmislyfin mín.. eða hef þau amk í bakhöndinni 😉
Kossar létta ofnæmisviðbrögð
Ný japönsk könnun sýnir að langir kossar (30 mínútur) geta verið gagnlegir þeim sem þjást af heymæði og frjóofnæmi. Rannsóknin sýnir að kossarnir róa ofnæmissjúklinga og minnkar histamínframleiðslu í líkama þeirra, en það er hún sem kemur ofnæminu af stað.
Úrtakið í könnuninni var reyndar ekki stórt, 24 pör kysstust í hálftíma og hlustuðu á róandi tónlist. Tilraunin var síðan endurtekin með faðmlögum en engum kossum. Blóðsýni sýndu að mótefni sem berst við ofnæmisvakann minnkaði til muna eftir kossana en enginn munur var á blóðsýnunum eftir faðmlögin.
Dr Hajime Kimata sagði að þessar niðurstöður sýndu að kossar gætu minnkað ofnæmisviðbrögð. Svo má til sannsvegar færa að það er lítt gaman að kyssa hnerrandi ofnæmissjúkling með nefrennsli og öllu sem því fylgir. Fréttavefur Ananova skýrði frá þessari rannsókn.
heimildir mbl.is