ég sat hérna í mestu makindum í sófanum og er eitthvað að fikta í tölvunni.. tek eftir því að alltíeinu kveiknar ljós á standlampanum hérna við hliðiná sófanum (þið sem þekkið hann þá er það snertilampinn) .. fer alveg í fulla birtu og minnkar svo niður í minnstu birtu og er stöðugur þar..
ok, þetta væri svosem ekkert skrítið nema afþví að lampinn snertir ekki neitt!!!! hann stendur alveg “frír” á gólfinu!!!! það er ekki einusinni auka rafmagnssnúra nálægt honum sem gæti gefið stuð eða neitt!!!
vírd!
—-
annað þessu ótengt þá finnst mér lamparnir frá Herstal alveg geggjaðir 😉 ég er mjög sátt við þennan lampa, þó hann hafi verið dýrari en við hefðum viljað.. sé sko engan vegin eftir þessum kaupum!!! og ef ég væri að leita mér að vegglömpum (sem þyrftu ekkert endilega að gefa frá sér mikla birtu) þá er ég alveg búin að sjá draumalampana.. hvar jú auðvitað hjá þeim!!!
þennan og þennan 😉
er kannski einhver til í að redda mér íbúð fyrst *Hhahahahah*
Oj…krípí lampi, ég hefði hlaupið skíthrædd og fengið að kúra hjá nágrannanum 😛
heheh, ertu alveg viss Sigurborg mín?
kúrað hjá nágrannanum.. hvað ætli Robbi myndi segja við því???