… mæðginin komust áfallalaust á milli kastrup og hovedbaanegaarden, hitti þau þar hress og kát, röltum aðeins eftir strikinu og Brynjar Óli hafði varla undan því að váa á allar dúfurnar sem við löbbuðum framhjá.. bara sætt 🙂
… H&M var tæmd í dag 🙂 má segja amk sko þar sem við (eða Lilja) vorum annsi duglegar við að plokka úr hillunum 🙂 Ég held að Lilja hafi náð að kaupa helling af jólagjöfum, ekkert smá sniðug að klára þær svona snemma.
… bjór sötraður og skuld spiluð fram eftir kvöldi.. við erum reyndar öll orðin svo “gömul” að við erum að fara að skríða í bælið.. reyndar erum við með sjálfvirka vekjaraklukku sem á eftir að vekja okkur snemma í fyrramálið til þess að “heimta” að fara í dýragarðinn.
já Dagný mín alltaf jafn gaman að kíkja hér inn. Þú veist væntanlega að ég skoða hér reglulega og hef ótrúlega gaman af því. En ég er alveg hissa hvað þú ert dugleg að mynda þér hlítur að vera íllt í myndavelinni, he he he nei enn mér finnst gaman að sjá hvað þið eruð að gera og hvernig gangi.
Hafið það sem allra best kveðja frá litla Íslandi
isss, það er alltaf gaman að vera með myndavélina á lofti 🙂
ég er meiraðsegja ekki sátt við það hve fáar myndir ég hef tekið síðan þau mæðginin komu en þær eru bara 100.. erum auðvitað að fara í dýragarðinn með guttann á eftir og ætli þá bætist ekki hátt í 100 eða meira við 🙂 hlakka ekkert smá til að fara með 18 mánaða gutta að sjá dýrin 🙂 Það skemmir auðvitað ekki að það þarf ekkert að borga fyrir þessar myndir *Haha* ekki nema þær sem ég vil eiga 🙂
Ásta Lóa mín þú ert ávallt velkomin eins og allir aðrir hingað í heimsókn 🙂 enda bara gaman að sjá að fólk fylgist með manni á meðan maður er svona í burtu.
við hefðum getað spilað kana ef ég hefði getað komið – bara svekkelsi að komast ekki :o(
Það er þá bara eins gott að þeir hjá H&M hlaði aftur í hillurnar fyrir næstu helgi því að þá er maðurinn minn að fara til Köben og hann er sko með innkaupalista frá mér 😉
Gaman að þið skemmtuð ykkur svona vel í innkaupaleiðangrinum!
ohhh… mig langar svo að vera með…
ARG! *öfund* mig langar svo að komast í H&M og fríka út! aaaa freak out!