ég var að lesa stjörnuspánna mína inni á mbl.is og sé þar að hægt er að “velja saman” stjörnumerkin með tilliti til hvernig þau passa saman.. aníhú ég smelli auðvitað á tvíburana & ljónið (merkin okkar.. reyndar eru mamma og tengdó báðar tvíbbar líka) . Fyndið að lesa í gegnum svona.. þetta er auðvitað rosaleg “speki” í kringum þetta aha sjúr 😉
aníhú haldiði að skv þessu eigi merkin líka svona glimrandi vel saman:
TVÍBURAR og LJÓN
Tvíburi og Ljón falla umsvifalaust hvort fyrir öðru, enda bæði örlát og ástríðufull. Tvíburi og Ljón kunna að njóta lífsins saman og gleðja hvort annað. Þau eru eins og sköpuð hvort fyrir annað og sambandið einkennist af mátulega miklum átökum, svo hvorugu leiðist.
5 thoughts on “það er naumast”
Comments are closed.
Sko..Merkin hjá mér og tjellingunni pössuðu fínt saman…og þetta eginlega meikaði nokkuð sens.
já þetta meikar svosem alveg sens, bara fyndið 🙂
Hmmm, ég og Baldur erum bæði meyjur og það lítur ekkert sérstaklega vel út;
Vonandi tekur Meyjan ekki saman við aðra Meyju, því þá er hætt við að þær geri hvor aðra vitlausa með smámunasemi og sífelldu nöldri! Þær fylgjast gagnrýnum augum hvor með annarri og ergja sig yfir göllum sem þeir þekkja frá sjálfri sér. En ef þær eigna nú samt í ástarsambandi eða gifta sig, þá er hætt við að sambúðin verði harla daufleg. Þær gerðu betur í því að finna makann annars staðar í dýrahringnum!
Gísli á afmæli 9. júlí og ég 10. júlí
Sannkallað “veldi tilfinninganna”! Krabbinn er ofurviðkvæmur, en hjá öðrum Krabba finnur hann sálufélaga sem skilur tilfinningar hans og sýnir honum samúð og samstöðu. Þó að utanaðkomandi sýnist sambandið harla dauflegt, halda Krabbarnir oftast dauðahaldi hvor í annan allt til æviloka.
awwwww… ef ég bara tryði þessu!
Híhíh.. ætlaði að segja þér algjörlega þessu ótengt:
Þegar ég var á leiðinni í heimsókn á síðuna þína sló ég inn “kjanaprik.dk”. Þú ert semsagt orðin 100% dönsk í minni undirmeðvitund.