Jæja þá erum við loksins búin að fá blessað sjónvarpið í gang. Eða það er að segja getum tengt tölvuna við sjónvarpið og skoðað DVD í lit. Áður var það bara svarthvítt. DR1 er reyndar ennþá í snjókomu, en það er seinnitímavandamál. Erum alltaf á leiðinni að kaupa almennilega fjarstýringu af þessu sjónvarpi svo þá gætum við farið að stilla stöðvarnar inn.
En núna erum við farin að horfa á DVD í sjónvarpinu loksins!.