voðalega er eitthvað tómlegt og rólegt hérna núna.. sérstaklega miðað við undanfarna daga.
Tengdó eru búin að vera hjá okkur síðan á föstudaginn.. ferlega nice að hafa þau í heimsókn. Erum búin að leika túrista, fara í heimsóknir til ættingja og auðvitað heimsækja vini okkar í Ikea , svo fórum við í svaka innkaupaleiðangur í Bilka líka. Held að við þurfum ekkert að kaupa meiri klósettpappír áður en við komum heim *ahaha*
Það er sumsé búið að vera nóg að gera.. um leið og ég hef verið búin að vinna undanfarið (sem hefur verið milli 2 og 3) þá hef ég verið sótt og svo haldið í einhverja leiðangra hingað og þangað 🙂 bara gaman. Fékk m.a. að sjá sumarhúsasvæði sem SVIK höfðu leigt sumarhús á fyrir 20 árum síðan. Gaman að fylgjast með þeim rifja upp og upplifa svæðið upp á nýtt. Á sunnudeginum var farið í matarboð í “nýja South Fork” eða það er hús þeirra Vibe og Carstens kallað í gríni okkar á milli, enda HUGE hús með þessu líka svakalega útsýni.. útsýnið eitt og sér er draumur í dós.
Bílaleigubíllinn sem SVIK voru á var ekkert smá vel nýttur… ég hef aldrei séð svona miklu af stóru IKEAdóti pakkað inn í svona bíl 🙂 við semsagt fórum og keyptum okkur sófaborð (loksins fékk ég borðið mitt) og hillusamstæðu, vorum einmitt að klára að setja hillurnar saman áður en SVIK fóru héðan.. þetta er semsagt allt að koma núna… stofan bara orðin hómí 🙂
Annars þá fékk ég annsi skemmtilegt símtal frá Lilju vinkonu í gær.. haldiði ekki að hún hafi verið að panta flugfar fyrir þau mæðginin til Danmerkur núna í okt. Það verður frábært að fá þau í heimsókn… ekki það að það verði neitt verra að fá Sigurborgu og Robba helgina þar á eftir eða Sverri helgina þar þar á eftir 😀 hehe jájá það verður nóg að gera í gestamálum í næsta mánuði 😀 Ég held að ég hafi erft þetta gestrisnisgen frá mömmu.. það er alltaf pláss.. allir velkomnir.. bara betra að vita af því 😀 það er ekki af ástæðulausu sem húsið heima er kallað Hótel Birtingaholt.
jæja ég ætla að láta þetta duga í bili.. klæjar pínulítið í fingurgómana að komast upp í rúmið mitt/okkar að hvíla mig.. það er ekkert grín að vera á harðaspretti í nokkrar klst á hverjum degi í vinnu og því næst að labba hingað og þangað eins og túristi 😉
Takk fyrir okkur Inga & Skúli, þetta var virkilega notalegt.. hvenær komiði svo aftur ? 😉
elsku, Dagný, vinsamlegast birtu þessa grein á blogginu þínu…. takk takk takk
ath ath ath
ég, Hanna Kristín Skaftadóttir, hyggst gefa kost á mér í stjórn Heimdallar í næstkomandi kosningum félagsins.
Kosningarnar verða þann 27. september og að venju verður þessi aðalfundur félagsins haldinn í Valhöll (Háaleitisbraut 1). Fundurinn mun hefjast kl.16.00. Ég hvet eindregið alla sem þekkja til mín og minna starfa til þess að koma og kjósa mig. Ég er vel þess verð að komast að í þessari stjórn og þeir sem þekkja til mín vita hversu brennandi áhuga ég hef á þessu stjórnmálastarfi.
Einnig langar mig til þess að lýsa yfir stuðningi mínum við Vilhjálm Þór sem gefur núna kost á sér í formannssætið.
Áhugsamir um starfið og framboðið geta haft samband við mig í snr.:663-2850, mail: hannaks05@ru.is
Takk elskurnar mín,
kv,
Hanna Kristín 🙂
ööööh
… allavega, gott og gaman að þið séuð svona gestsæl 🙂 vildi ég gæti komið líka..
hanna mín, ég held að ég láti þetta nægja sem birtingu.. ég er voðalega lítið fyrir að nota síðuna mína fyrir auglýsingar.. sawie.
Iðunn.. já safnisafn..
MIG LANGAR LÍKA!!!!
koddu þá!!!