jájá hérna er búið að vera nóg um að vera…
ég fékk hjólið mitt á miðvikudaginn, er auðvitað búin að nýta mér það og hjólaði t.d. hérna út á túnið sem við fórum á um daginn (ég, LS og GunnEva) með teppi í körfunni, bók og smá nesti. ekkert smá notalegt að liggja þarna og lesa mína bók 🙂 Leifur kom svo og hitti mig þar eftir að hann var búinn í skólanum, frekar kósí hjá okkur skötuhjúunum.
Í gærkveldi var haldinn “aðalfundur félags íslenskranámsmanna í DTU” eða hvað þetta nú hét.. fygglerí! *heh* mér skildist á einni stelpunni þarna að það væru víst rúmlega 100 meðlimir í félaginu, það voru sennilegast svona um 30 manns mættir á svæðið. Fyndið hvað maður kannast við marga án þess að þekkja í rauninni.
Við ætluðum að fara í heimsókn til Svíþjóðar í dag en það verður víst að bíða betri tíma vegna þess að lasarus var á undan okkur í heimsókn, dóninn sá arna. Verðum að kíkja samt fljótlega til þín skvís! Planið er líka að fara fljótlega í heimsókn til Guðbjargar & Vignis, þurfum bara að sjá hvernig námsefnið raðast niður hjá LS, hann er búinn að vera örlítið dulegur við að sluxa, skil það reyndar vel þar sem það er búið að vera svo snilldar gott veður hérna að mann langar voðalega lítið að hanga innandyra.
jæja ég ætti kannski frekar að vera að eyða tímanum í að búa til kvöldmat heldur en að blogga? það væri amk dáldið sniðugt..
þar til næst 🙂