———
Myndastúss
þar sem ég sé fram á að ég eigi annsi fljótt eftir að vera komin með alltof mikla hrúgu af myndum á myndaalbúminu mínu þá ákvað ég að flokka danmerkuralbúmið dáldið upp..
íbúðaralbúmið verður á sínum stað frekar framarlega í albúminu, sem og nýja gestaalbúmið. En hinsvegar er ég búin að ákveða að flokka öll önnur albúm eftir mánuðum, er t.d. búin að færa allar þær myndir sem ég hef sett í albúmið sem teknar voru í ágúst og sett þær í sér albúm sem heitir ágúst 🙂
ég er samt að spá í að hafa alltaf nýjustu myndirnar sýnilegar í danmerkur albúminu… er enn að melta það 🙂 kemur í ljós.. ég allavegana held að þetta sé sniðugara svona þar sem ég þekki sjálfa mig eilítið þegar kemur að myndum 😉
———
gestir & spil
Við fengum Gunnar og Evu í heimsókn bæði í fyrradag og í gær, þau stungu inn nefinu hérna í fyrrakvöld eftir að Leifur var búinn í skólanum á leið sinni til vinafólks þeirra sem býr líka hérna í Holte. Í gær komu þau svo rétt eftir hádegið og við eyddum deginum + kvöldinu saman. fórum hérna í garð sem er ekki svo langt frá okkur og nutum þess að vera í sólinni. Tókum með okkur teppi og spilastokka og þau kenndu okkur nýtt spil sem heitir Kanna (Eva, þú þyrftir eiginlega að e-maila mér stigareglunum), næst á dagskrá hjá okkur er að finna okkur mótspilapar! þar sem þetta spil gengur út á stelpu & strákalið (auðvitað er önnur skipting líka möguleg, þessi er bara skemmtilegri 😛 ).
Fórum svo saman niður til Köben og fengum okkur að borða á stað sem heitir hinu frumlega nafni Resturant Italiano, ferlega kósí að fá að sitja úti þarna, teppi á öllum stólunum þannig að ef manni varð kalt þá bara um að gera að breiða yfir sig 😉 þegar við vorum búin að borða var förinni heitið í Tivolí, ég er ekki frá því að fiskarnir sem við Leifur hlógum og hlógum að um daginn séu aðal aðdráttaraflið þarna í tivolí, einhverntíma fyrir langa langa löngu hafa þessir RISA fiskar verið sætir litlir gullfiskar, eða ok gullfiskar af stærri gerðinni, en í dag eru þetta stærðarinar fiskar sem keppast um hvern molann á fætur öðrum frá fólki sem stendur á brúnni og hendir til þeirra. Frekar fyndið.. eiginlega enn fyndnara að fylgjast með öndunum sem eru að slást við fiskana um þessa mola.. æj I guess you just have to be there 🙂
———
enn meiri gestagangur
Við erum búin að fá nokkrar heimsóknir frá klakanum staðfestar *jeij*
Tengdó ætla að koma núna á föstudaginn í næstu viku og vera hjá okkur í nokkra daga, svo ætla Sigurborg & Robbi að koma 13 okt til 19 okt. Svo heppilega vill til að skv dagatali á heimasíðu DTU þá á Leifur að vera í fríi vikuna 17 til 21 okt þannig að hann getur eytt hellings tíma með litlu sys og Robba 🙂
Svo ætlar Sverrir að koma með okkur á Bob Dylan tónleikana 🙂 miðinn hans datt einmitt inn um bréfalúguna núna í morgun 😉 hann kemur í Mörkina þann 20.okt 🙂 og fer aftur 24.okt. Allt að gerast og bara gaman að þessu 😉
búhú! :'( … en þið skemmtið ykkur bara fyrir mig líka :p
hey, þú þarft bara að vinna í happadrætti líkt og ég… ekki amalegt að fá 50þ kall upp í hendurnar *múhahahah*
Já, það rétt dugir fyrir miðakostnaði þetta árið! :Þ
nauj, vannstu í happdrætti?!
mjá! fékk símtal frá múttukrúttu í fyrrrakvöld þar sem hún var að spyrja inn á hvaða reikning ég vildi fá aurana mína 😉
Á reglurnar ekki á tölvutæku formi, þið spurjið bara ef það er eitthvað sem þið munið ekki! 🙂
eva, mig vantar eiginlega stigareglurnar.. þ.e. hvar maður byrjar þegar maður er með x mörg stig og svo frv…