ég held að ég sé búin að komast að því hversvegna er svona mikið af hundum hérna.. þ.e. ef sumir hafa ekki verið að reyna að ljúga að mér *Heh* það var verið að ræða þetta í lestinni í gær á leiðinni niðrí Köben, þ.e. ég, Leifur, GunnEva og einhver kunningi bræðranna Helgi Þór, hvað…
Category: Danmörk
Stubbarnir
Stubbarnir búa í eldhúsinu okkar. Við erum alveg viss um það. Allavega finnur maður lyktina af þeim þegar maður opnar ruslaskápinn í eldhúsinu. “Sambýlingar okkar” reykja hræðilega mikið og tæma öskubakkana oftast í ruslið eftir vikuna.. en sú fýla.
myndablogg
örfréttir
túristar, þreyttir fætur, brunnar axlir, amalieborg, litla hafmeyjan, langeline, ny havn, strikið, GunnEva, heitt, mikið labb, löbbum meira á morgun, kennitala DÁM, Bob Dylan miðar… eflaust eitthvað fleira… söknum ykkar allra, viljum fréttir að heiman 😉 ekkert til sem heitir engarfréttir 😉 netfangið er kjanaprik at kjanaprik.is 😉
fyrsta heimsóknin á Vejledal
Við fengum okkar fyrstu heimsókn í gærkveldi frá Vibe og Dúddí (jeij ég fékk loksins að hitta Dúddí) 🙂 Þær komu rétt fyrir kl 7 með fullan bíl af dóti handa okkur, ekki amalegt 🙂 fengum sitthvort hjólið og sjónvarp!!! sjónvarpsskáp, 2 lampa og auka dýnu 🙂 þetta er barasta allt að koma hérna hjá…
Tónleikar
Við vorum að kaupa okkur miða á tónleika! 🙂
skógarferð
Við ákváðum að rölta um hverfið eftir skólann hjá LS í gær. enduðum reyndar á því að labba helling um skóginn hérna í “bakgarðinum” hjá okkur 🙂 ferlega kósí að rölta svona um. ekki skemmdi það fyrir að það var alveg snilldar veður, glampandi sól og hiti 🙂 Skrítið hvernig skordýralífið er allt öðruvísi hérna,…
hvaða lækni viltu?
við fórum í dag upp í “hagstofu” og létum skrá okkur inn í landið.. sem er í raun ekkert merkilegt fyrir utan það að við vorum látin fá lista af nöfnum (og einhverjar smá aukaupplýsingar m.a. fæðingarár) og svo var sagt þið þurfið að velja ykkur lækni! uh ok ég tók bara þá ákvörðun að…