Stundum, bara stundum er þörf á að fylgja foreldrunum í vinnuna, sem betur fer gerist það ekki oft. Sigurborg fékk að koma með mér nýlega og við ákváðum að kíkja hversu mikið hún hefur stækkað undanfarið þar sem mér finnst ég alltaf vera að skipta út fötum hjá henni þessa dagana… viti menn, daman barasta…
Category: fjölskyldan
Prjón: February Hat
Hópurinn “ein slétt ein brugðin” á Facebook setti upp samprjón í byrjun árs þar sem allir voru að prjóna húfur úr seríu sem heitir “Year of Hats” og er á Ravelry. Það var sumsé höfundateymi sem gaf út 12 fríar uppskriftir á síðasta ári eða 1 í mánuði. Mjög skemmtileg hugmynd og margar fallegar húfur…
Uppskeruhátíð Ægis
Duglega barn! Oliver var annar stigahæsti í sínum aldursflokki árið 2019 og með bestu ástundun drengja í sínum hópi, þjálfarinn hans sagði að aðrir ættu að taka hann til fyrirmyndar þar sem hann mætti á allar æfingar þrátt fyrir að vera meiddur – og í þokkabót hafi hann mætt aðeins meiddur á eina æfinguna og…
sundstelpa
Þreytta stelpuskottan mín eftir flott sundmót í Keflavík í dag. Stóð sig svo vel á mótinu þó vinna þurfi í sumum atriðum til að fá gilda tíma en það kemur allt með kalda vatninu. Markmið náðist þó í dag að ná gildum tíma í bringusundi 😀
365/365 puuurusteik
Þessi hefð… elsk’ana! Leifur sér um eldamennskuna 100% þennan fyrsta dag ársins á hverju ári, ég er bara svona “on the side” ef eitthvað vantar 😉 En purusteikin hefur ekki klikkað enþá þó ég sé ekkert fyrir puruna sjálfa og krakkarnir slást við Leif um minn skammt af puru þá finnst mér steikin sjálf góð…
Annállinn
Jæja… árið er senn á enda og kominn tími til að gera árið upp á minn hátt <3 Ég er búin að vera að velta því fyrir mér hvort ég ætti að gera þetta mánuð fyrir mánuð líkt og ég hef gert svo oft áður en ég er eiginlega á báðum áttum hvað það varðar……
363/365 flugeldasýning ÍR
Fjölskyldan mætti á flugeldasýningu ÍR í kvöld. Glæsileg að vanda og merkilegt nokk þá náði ég nokkrum ágætis myndum á símann minn í kvöld. Mynd dagsins fær að vera ein af þeim
362/365
Ég hef talað um það áður að Oliver hefur greinilega erft handlagnina frá ömmum sínum og öfum. Hann gaf okkur þessa snilldar melónu í jólagjöf og er hún bæði vel gerð og hagnýt þar sem þetta er “rakapúði” sem á að draga í sig rakann í bílnum og á að vera staðsett við framrúðuna segir…