Ég er ekki alveg að skila þetta hylki sem ég kýs að kalla líkama minn… treð ofaní hann vítamínum alla daga samt má ég ekki reka mig í og þá er kominn marblettur… getur verið dáldið svekkjandi þegar maður er að fara eitthvað og ætlar sér að vera svaka fínn í ermalausum bol eða eitthvað…
Myndir
Ég var að setja inn myndir frá því í göngutúrnum okkar Leifs á þriðjudagskvöldið ef einhver hefur áhuga…Gaman að sjá hvernig umhverfið breytist við það að fá nokkur snjókorn á sig. muna svo að það er ekkert mál að skrifa komment við myndirnar
Bridget Jones
Ég “tróð” mér með Lilju og vinkonum hennar á forsýningu Bridget Jones í gær… vá hvað þessi mynd er sko ekkert síðri en sú fyrri… það er greinilega farið að vera með aðeins hærri standarda þegar verið er að búa til framhaldsmyndir *jeij* fyrir því. Uhu.. það versta við að fara á svona forsýningar er…
þessi er góður
Positive thought for the day… When you feel that nobody loves you,Nobody cares for you,And everyone is ignoring you,You should start asking yourself… Am I TOO sexy?
stórt bros
Ég á yndislegan kærasta.. verð bara að tjá mig um það Hann bað mig um að hittast í hádeginu mínu… var reyndar mættur þónokkuð áður en ég gat losnað.. bíða mín ekki 10 rauðar rósir hjá þessum sætasæta strák. Merkilegt hvað svona litlir hlutir geta gert fyrir leiðinlegan vinnudag
hmm
Ég var að fá mér samloku og fékk eftirfarandi athugasemd frá samstarfsmanni mínum; “Þessi samloka er bara svo holl að hún er nánast óholl” *piff*
lítill heimur
heimurinn getur verið annsi lítill Fyrir nokkrum árum flutti móðursystir mín til Grindavíkur frá Ólafsvík, hún fékk sér vinnu svona eins og gengur og gerist og eftir nokkurn tíma þá kemst hún að því að mamma æskuvinar míns (þá er ég að tala um bestabestabesta vinar míns frá því að ég var enn með bleyju…
jeij snjór!
já ég ætla að tala um snjóinn einu sinni enn… Við skötuhjúin fórum út í göngutúr í gærkveldi í nýföllnum snjónum… ég er alltaf eins og smákrakki þegar svona skemmtilegur snjór kemur *jeij* ekta snjór til þess að fara í snjókast, búa til snjókalla og snjóhús… samt merkilega lítið af krökkum úti *heh* verst að…