rakst á dáldið sniðugt spakmæli á flakki mínu um netheima…Sú ákvörðun að eignast barn er sú ákvörðun, að eilífu gangi hjarta þitt utan líkama þíns. Höf: óþekktur
huff & puff & blow your house away!!!
vá hvað þetta er búinn að vera hörmulega ömurlegur vinnudagur… Langar mest að drullast heim leggjast upp í rúm og grenja úr mér augun! dáldið dramatískt ég veit… en tilfinningin í augnablikinu er þannig. Það er samt í raun ekkert búið að ganga á afturfótunum svona beint… en ég er búin að þurfa að taka…
aRG!
ég er að verða búin að fá nóg!!! heimta fund með yfirmanninum ASAP!
haha sæta sæta frænka mín
Var að fikta inn á vef NFVÍ og fann þessa líka sætu mynd af henni frænku minni *hahaha*
Miðhúsaskógur
jæja þá er maður kominn heim… hefði samt ekkert haft á móti því að vera eitthvað lengur þarna í sveitasælunni. Komum upp úr 7 á föstudagskvöldið og fórum beint í að láta heitt vatn renna í pottinn og koma dótinu okkar inn… Ferlega notalegur bústaður sem við fengum út af fyrir okkur þessa helgi. Eftir…
góða helgi
dúllurnar mínar hvað svosem er á ykkar plönum *smæl*
bráðum…
ég á bara 50 mín eftir í vinnunni… tel niður mínúturnar… alveg í orðsins fyllstu merkingu!!! um leið og ég er búin hérna sting ég af heim.. skipti um föt hendi tösku út í bíl, kveð gamla settið og bruna inn í álfheimana… þar pikka ég upp aðra tösku og Leifinn minn *smæl* Við skötuhjúin…
stelpusíðdegi/kvöld
eftir vinnu í gær skruppum við Iðunn inn í Ikea og þaðan í kringluna… langt síðan við höfum tekið svona stelpukjaftatarnarsíðdegi… til að toppa allt þá skelltum við okkur á EKTA stelpu mynd… enga aðra en Princess Diaries 2 *jeij* Björg vinkona hennar Iðunnar bættist í hópinn þegar við komum í bíóið.. langt síðan við…