- 500 g ljós púðusykur
- 500 ml rjómi
- 50-100 ml Baileys
- 100-150 g hvítt súkkulaði
Aðferð: Saman í pott er settur sykur, rjómi og Baileys og látið krauma rólega góðan tíma. Það þarf að standa yfir pottinum og hræra reglulega í.
Þegar karamellan er farin að þykkna og fá fallegan lit er súkkulaðið sett út í, hrært varlega og strax sett í form sem hefur verið klætt að innan með bökunarpappír. Gott er að nota lítil ferköntuð browniesform fyrir þetta. Kælið og skerið til að vild.
Birt í jólablaði morgunblaðsins ’09
