Döðlukaka

….sem ekki þarf að baka

  • 500gr döðlur
  • 60-70gr kókosolía
  • 50-100gr suðusúkkulaði, brytjað
  • 1 lítill bolli haframjöl
  • 2 bananar
  • smávegis af hökkuðum heslihnetum eða möndlum

Döðlurnar eru hitaðar í potti og maukaðar. Maukuðum bönunum er bætt út í ásamt haframjöli og kókosolíu. Maukið er sett í eitt stórt form eða tvö lítil og haft í kæli eða frysti í smá tíma. Síðan eru kókosflögur, fersk jarðaber og brytjað suðusúkkulaði sett ofan á og kakan borin fram með þeyttum rjóma.

Einfallt og voða gott.

Birtist í Fréttablaðinu mars/apríl ’10

Posted in Kökur, auðvelt, hollusta, án mjólkurvara | Leave a comment

Eplagott

  • Lu kexið (kanelkexið) 1 pakki,
  • smá bláberjasulta (má sleppa),
  • 3 stk jonagold epli (afhýða og svo rífa),
  • 1 peli rjómi
  • 2 granat epli.

Brytjið Lu kexið í botninum og setjið smá sultu ef þið viljið svo eru jonagold eplunum stráð yfir, svo þeytti rjóminn yfir það og svo granat eplin á toppinn.

Matur: Eplagott

*fékk þessa hjá Guðrúnu í einum mömmuhittingnum *nammigott*
Posted in Kökur, auðvelt | Tagged , , , , , | Leave a comment

Kjúklingabaunir

Eru í raun og veru fræ, en eru yfirleitt flokkaðar með baunum.

Í útliti eru þær hrukkóttar, óreglulegar í laginu og í mörgum litbrigðum (svörtum, rauðum og gulum). Hægt er að kaupa þurrkaðar, niðursoðnar og í mjöli.

Þurrkaðar þarf að leggja í bleyti í um 18 klst og sjóða í um 80 mín. Niðursoðnar eru þær tilbúnar til notkunar en mjölið er helst notað í bakstur.

Kjúklingabaunir eru án kólesteróls en ríkar af próteini, steinefnum og kolvetnum.

 

Kjúklingabaunir eru notaðar í súpur, allskyns mauk, hummus og kássur, t.d. í Frakklandi, Spáni og í Mið-Austurlöndum. Þær eru gjarnan notaðar í sósur fyrir couscous og henta vel í ýmis salöt og grænmetisbuff. Þær eru einnig góðar marineraðar í olíu og hvítlauk. Þá mætti einnig þurrista þær á pönnu eða í ofni og strá sjávarsalti og góðu kryddi yfir þær og borða sem snakk. Kjúklingabaunir eru auðmeltanlegar.

Kjúklingabaunir eru notaðar í súpur, allskyns mauk, hummus og kássur, t.d. í Frakklandi, Spáni og í Mið-Austurlöndum. Þær eru gjarnan notaðar í sósur fyrir couscous og henta vel í ýmis salöt og grænmetisbuff.

Meiri fróðleikur um baunir í matreiðslu.

Posted in Fróðleikur | Leave a comment

Flapjack

  • 80g smjör
  • 80g púðursykur
  • 60g (2 msk) sýróp
  • 1/2 tsk salt
  • 130g haframjöl
  • 35g þurrkuð epli skorin í bita
  • 25g þurrkuðtrönuber
  • 35g þurrkaðar apríkósur skornar í bita
  • 25g graskersfræ
  • 2 msk sólblómafræ
  • 25g kókos (eða þurrk.kókos)

Smjör, sykur, sýróp og salt brætt saman í potti.

Öll þurrefni sett í skál og blönduð saman. Smjörsýrópsblöndunni hellt yfir og hrært vel saman.

Setjið bökunarpappír/smyrjið 20cm kanntað bökunarform. Setjið blönduna í og þrýstið niður með kartöflustappara

Bakið í ofni við 180°c í 18 til 20 mín.

Kælið vel og skerið í ferninga áður en borið fram.

Posted in auðvelt, hollusta | Tagged , , , , , , , , , | Leave a comment

Fryst Marengsrúlla

Marengs:

  • 3 dl sykur
  • 3 dl púðursykur
  • 6 eggjahvítur

allt þeytt saman, smurt á bökunarplötu (klæddri bökunarpappír). Bakað í ca 1 klst. við 180 °C -eða bara þar til hann er tilbúinn.
Þegar botninn er orðinn kaldur er hann dreginn á bökunarpappírnum yfir á vel rakt viskastykki og annað slíkt lagt ofan á hann. Þá mýkist hann allur upp og hægt er að rúlla honum.

Fylling:

  • 1/2 l þeyttur rjómi
  • 1 -2 öskjur fersk jarðaber – eða önnur fersk ber
  • súkkulaðibitar að eigin vali (t.d. mars, snickers, toblerone eða eitthvað allt annað eða blöndu af nokkrum tegundum.) Nokkur stykki þarf í kökuna.

Súkkulaðikrem:

  • 6 eggjarauður, þeyttar
  • 50 gr smjör-brætt
  • 100 g suðusúkkulaði -brætt

Fyllingunni er smurt á botninn, honum er rúllað upp frá langhliðinni og samskeytin látin snúa niður. Út úr þessu kemur risa rúlla. Yfir er svo hellt súkkulaðikremi. Svo er kökunni stungið í frystinn og tekin út um 3 klst áður en borin fram.

Posted in Kökur | Tagged , , , , , , , , | Leave a comment

súkkulaði appelsínu smákökurnar hennar Söru

  • 1/2 bolli smjörlíki
  • 1/2 bolli flórsykur
  • 1/4 bolli púðursykur
  • 1 egg
  • 1 tsk vanilla
  • 1 bolli hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 100 g suðusúkkulaði
  • 25g appelsínubörkur (u.þ.b. utanaf einni stórri appelsínu)

Appelsínubörkurinn er rifinn niður og betra að saxa súkkulaðið ekki of smátt :>

Smjörlíkið, sykurinn, eggið og vanillan hrært létt saman. Síðan er þurrefnunum blandað saman við og að lokum súkkulaðinu og berkinum. Sett á bökunarplötu, u.þ.b. 1 tsk hver kaka. Bakað við 200°C í 8-10 mínútur.

Posted in Smákökur, án mjólkurvara | Tagged , , , , , , , , , | Leave a comment

Jarðaberjafordrykkur/bolla

  • 1kg jarðaber
  • sykur
  • 1 flaska hvítvín
  • 3 flöskur kampavín/mjög þurrt freyðivín

Skerið jarðaberin í tvennt og setjið í skál. Stráið sykrinum yfir, magn er smekksatriði. Hellið hvítvíninu yfir berin og sykurinn og látið standa í kæli í 2 tíma eða yfir nótt.

Setjið slatta af ís í stóra skál, berjablöndunni hellt þar yfir í gegnum sigti. Berjunum og kampa/freyðivíninu bætt við rétt áður en bollan er borin fram (einnig má bæta við berjum).

Borið fram í hvítvínsglösum

Stolið úr tímariti á biðstofu í Domus Medica )
Posted in Drykkir, áfengir | Tagged , , , , | Leave a comment

Snickerssmákökur

  • 100gr snickers saxað
  • 150gr suðusúkkulaði saxað
  • 150gr púðursykur
  • 80gr smjör
  • 1stk egg
  • 160gr hveiti
  • 1/4tsk natron
  • 1/3tsk salt
  • pínu vanilla

Öllu blandað saman, rúllað í lengjur og kælt. Skorið niður og bakað við 175°í ca 8mín

Posted in Smákökur | Tagged , , , , , , , , | Leave a comment

Súkkulaðibitakökur (“þær allra bestu”)

  • 200 gr. Smjörlíki
  • 1 bolli sykur
  • 1 bolli púðursykur
  • 2 egg
  • 1 tsk. Matarsódi
  • 1 tsk. Salt
  • 1 msk. Heitt vatn
  • 1 tsk. Vanilludropar
  • 2 bollar hveiti og 4 msk. Hveiti
  • Ca.300 gr. Súkkulaðibitar, daím eða hvað sem er, t.d. er lakkrískurl mjög gott. Gott er að nota blöndu af daími og súkkulaðibitum (þá passar vel að hafa 300gr. af daím kúlum og svo ca. 100gr. af súkkulaðispænum).

Hræra allt saman í skál, nota svo teskeið til að setja á plötu með bökunarpappír og baka í miðjum ofni á sirka 170 °c þangað til þær verða ljósbrúnar, fer eftir ofnum en í sirka 5-10 mín.

Daim smákökur
tekið af spjallborði er.is

Posted in Smákökur, án mjólkurvara | Tagged , , , , , , , , , , , | Leave a comment

rúllutertan hennar Söru

  • 3 stk. egg
  • 105 g sykur
  • 60 g  hveiti
  • 1 1/2 msk. kartöflumjöl
  • 2 tsk. kakó
  • 1/2 tsk. matarsóti

Smjörkrem:

  • 150 g smjör
  • 100 g smjörlíki
  • 230 g flórsykur
  • 1 stk. egg
  • 1 tsk. vanilludropar

Þeytið eggin og sykurinn mjög vel saman í ca. 10 min. Sigtið þurrefnin út í og blandið saman með sleikju. Smyrjið útá plötu og bakið við 230°í 6-7 min.

KREM: Blandið öllu hráefninu saman og vinnið í öðrum gír ca. 12-15 min, minna eftir því sem smjörið er mjúkt, því kaldara þeim mun lengur. Smyrjið á kaldan botninn og rúllið upp. Ef þið viljið gera einhver afbrigði af smjörkremi, t.d. súkkulaði eða núgga, þá er bara að bræða súkkulaðið eða núggatið og blanda því saman við með sleikju eftir að búið er að gera kremið.

Posted in Kökur, auðvelt | Tagged , , , , , , , , , | Leave a comment