Kókostoppar

 (lítil uppskrift)

  • 1 egg
  • 80 gr sykur
  • 80-100 gr kókosmjöl

Sykur og egg þeytt mjög vel. Kókosmjöli bætt út í varlega. Sett á plötu með teskeið. Bakað við vægan hita ljósbrúnar.

Hugmynd: einnig má dýfa helming hverrar köku í bráðið súkkulaði – kemur vel út

Af spjallborði ER.is

Posted in á eftir að prufa, án mjólkurvara, Smákökur | Tagged , , | Leave a comment

Negulkökur

  • 250 gr. hveiti
  • 250 gr. púðursykur
  • 125 gr. íslenskt smjör (lint)
  • 1 stk egg
  • 1,5 tesk. lyftiduft
  • 0,5 tesk. matarsódi
  • 1 tesk. engifer
  • 0,5 tesk. kanill
  • 0,5 tesk. negull

Öllu skellt saman í skál og hnoðað rólega saman. Kælt í smá stund.

Gerðar litlar kúlur og settar á bökunarplötu og síðan þrýst á með fingri eða gaffli. Bakað við 180 gráður í 8-10 mín.

Af spjallborði ER.is

Posted in á eftir að prufa, Smákökur | Tagged , , , , , , , , | Leave a comment

Kókossúkkulaðikökur frú Jónu

  • 2 egg
  • 2 dl sykur > Þeytt vel saman
  • 3 dl kókosmjöl
  • 2 dl hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 50 gr brytjað suðusúkkulaði

Blandað saman við eggjahræruna og sett með teskeið á plötu og bakað við 160°c
Þessu uppskrift er á u.þ.b. 2 plötur

Af spjallborði ER.is

Posted in á eftir að prufa, án mjólkurvara, Smákökur | Tagged , , , , , | Leave a comment

Lion bar kökur

  • 100 gr Lion bar
  • 100 gr saxað suðusúkkulaði
  • 150 gr púðursykur
  • 80 gr smjörlíki
  • 1 egg
  • 160 gr hveiti
  • 1/4 tsk natron
  • ½ tsk salt
  • 1 tsk vanilludropar

Allt hrært vel saman, lion bar sett saman við síðast smátt saxað. Sett á bökunarpappír með teskeið uþb ½-1tsk í hverja köku. Hafið bil á milli því þær renna dálítið út. Bakaðar í ca 8 mín við 180 gráður. EF þær eru of lengi í ofninum verða þær grjótharðar.

Af spjallborði ER.is

Posted in á eftir að prufa, án mjólkurvara, Smákökur | Tagged , , , , , , , , | Leave a comment

Kornflexsmákökur

  • 4 eggjahvítur
  • 2 bollar púðursykur > stífþeytt.
  • 4 bollar kornflex
  • 2 bollar af kókosmjöli blandað saman við
  • 100 gr af smáttsöxuðu suðusúkkulaði
  • 1 tsk af vanilludropum
Sett með teskeið á bökunarpappirsklædda plötu í smá toppa. Bakað við 150 gráðu hita í ca 15 mín.

af spjallborði ER.is

Posted in á eftir að prufa, án mjólkurvara, Smákökur | Tagged , , , , , | Leave a comment

Karmellufylling

  • 100gr karamellu Nizza
  • 60gr rjómi

Bræðið karamellu Nizza í potti eða örbylgjuofni, sjóðið rjómann, hellið honum síðan yfir bræddu karamelluna í smá skömmtun. Látið samlagast vel – Kælið.

Birtist í jólablaði Fréttablaðsins í nóvember 2010

Posted in auðvelt, á eftir að prufa, Fyllingar | Tagged , | Leave a comment

Jólaleg hindberja ostaterta

  •  600 g rjómaostur
  • 400 ml þeyttur rjómi
  • 150 g flórsykur
  • 400-500 g frosin hindber
  • 7 blöð matarlím

Botn

  • 1 pakki Lu Bastogne kanil kex mulið
  • 100 g smjör  
  • 1-2 msk sykur

Aðferð: Ostur og sykur hrærður létt saman þar til blandan er mjúk og slétt. Rjóminn er þeyttur og blandað varlega saman við. Leysið upp matarlímið og maukið ca 200 g af hindberjum í matvinnsluvél. Blandið lími og berjum saman og þeirri blöndu síðan varlega saman við ostablönduna.

Vel mulið kexið er sett á pönnu með smjöri og sykri og látið ristast þar við vægan hita. Þrýst vel niður í smelluform (ég set formið beint á kökudiskinn ekki með botni á). Hellið blöndunni yfir og látið kólna.

 Birt í jólablaði morgunblaðsins ’09

Posted in á eftir að prufa, Kökur | Tagged , , , , , , , | Leave a comment

Nammigóðar Baileyskaramellur

  • 500 g ljós púðusykur
  • 500 ml rjómi
  • 50-100 ml Baileys
  • 100-150 g hvítt súkkulaði

Aðferð: Saman í pott er settur sykur, rjómi og Baileys og látið krauma rólega góðan tíma. Það þarf að standa yfir pottinum og hræra reglulega í.

Þegar karamellan er farin að þykkna og fá fallegan lit er súkkulaðið sett út í, hrært varlega og strax sett í form sem hefur verið klætt að innan með bökunarpappír. Gott er að nota lítil ferköntuð browniesform fyrir þetta. Kælið og skerið til að vild.

Birt í jólablaði morgunblaðsins ’09

Posted in á eftir að prufa, nammi / konfekt | Tagged , , , | Leave a comment

Súkkulaði og hnetustangir

  • 200 g súkkulaði 
  • 200 g dökkt súkkulaði
  • 100 g smjör
  • 3 tsk. sýróp
  • ca 50 g valhnetukjarnar
  • ca 50 g heslihnetur
  • ca 50 g möndlur
  • ca 50 g kirsuber
  • ca 50 g döðlur  

Aðferð: Súkkulaði, smjöri og sýrópi er blandað saman í pott og látið bráðna varlega. Því næst er blandað út í fyllingu og sett í form og látið kólna.

Gott er að klæða jólakökuformið að innan með filmu.

Birt í jólablaði morgunblaðsins ’09

Posted in á eftir að prufa, nammi / konfekt | Tagged , , , , , , , , | Leave a comment

Mozartkúlur

 U.þ.b. 40 stk

  • 250 g blöd nougat frá Odense
  • 250 g konfektmarsípan frá Odense
  • 100-200 g hjúpsúkkulaði

Mótið litlar kúlur á stærð við baunir, úr núgatinu. Skerið marsípanið í þunnar sneiðar, fletjið hverja sneið lauslega út með lófanum og vefjið utan um núgatið. Rúllið hverjum mola í fallega kúlu og hjúpið með hjúpsúkkulaði.

Fann þessa á netinu haust ’10

Posted in nammi / konfekt | Tagged , , | Leave a comment