hitt og þetta
ég er búin að hafa þennan editor glugga opinn í lengri tíma í dag og fara nokkrum sinnum hingað inn af því að það er alltaf eitthvað sem ég ætlaði að skrifa en svo um leið og ég opna browserinn þá man ég það enganveginn… —————– Get enganvegin sagt að ég sé komin í jólaskap,…
ábending!
Mér var bent á að þetta hrossalyf sem hefur verið talað um í tölvupóstum sem gengið hafa síðustu vikur sé víst bara plat, EN það þýðir samt ekki að stelpur þurfa að hafa allan varan á í sambandi við drykkina sína á skemmtistöðum – til er nóg af öðrum viðbjóði sem þessir óþokkar nota.
*geisp*
ég held, ef ég fengi einhverju um það ráðið, þá gæti ég sofið endalaust þessa dagana.. myrkrið er ekki alveg að gera sig. annars er í raun ekkert búið að vera að gerast hjá okkur fyrir utan jú, við keyptum okkur 1 stk bíl í síðustu viku – alveg að komast í “pakkann“, bíllinn kominn,…