Ég skellti mér á hekl námskeið hjá Eddu Lilju eða aka Snigla ásamt Evu Hlín vinkonu. Lítið og sætt 2x3t námskeið sem haldið var í Galleri Thors í Hafnarfirði. Farið var í grunninn á hekli og fyrra kvöldið kenndi hún okkur að hekla vettling + blúndu á hann og fengum svo það heimaverkefni að gera húfu….
Category: daglegt röfl
plöntur á svalirnar…
Um daginn þegar við vorum að hjálpa til í garðinum við Birtingaholtið tók ég alveg fullt fullt af jarðarberjaplöntum upp sem voru búnar að dreifa sér annsi vel út í eitt beðið á kartöflugarðinum. Við mamma gáfum Svövu vinkonu úr ágústbarnahópnum nokkrar sem og Evu Huld úr ágústbarnahópnum en enn voru þónokkuð margar plöntur eftir….
Prjón: BSJ
BSJ eða Baby Surprice Jacket eftir Elizabeth Zimmerman er skondin lítil flík sem hægt er að prjóna í ýmsum stærðum og gerðum… allt eftir því hvaða garn er notað og hvaða prjónastærð. Minn BSJ er gerður úr gulu Nammi (sjá neðar í færslunni), afskaplega bjartur og fallegur gulur litur Þetta er í fyrsta sinn…
Leikhús
Ég er búin að vera að bæta mér upp leikhússnauðan vetur í þessari viku Oliver Twist Fór á Oliver Twist með mömmu og pabba um síðustu helgi. Flott sýning með fullt af efnilegum krökkum. Eggert Þorleifsson var ágætur í hlutverki Fagins en komst samt ekki nálægt Ladda sem var í því hlutverki síðast þegar…
klári klár
Ég er búin að vera alltof lengi að prjóna lopapeysu á sjálfa mig… og hún er ENN í vinnslu. Var reyndar búin með hana en var svo ósátt við munstrið að ég rakti hana upp! er langt komin með munstrið aftur – þarf bara að koma mér í að klára hana! Þessi peysa er svona…
fimmaurabrandarar í boði Eyjafjallajökuls
Veistu af hverju það er stöðugt gos á Íslandi???? Það er verið að gera pláss í helvíti fyrir þá sem eru ábyrgir fyrir bankahruninu…. það var meira segja beðið eftir Skýrslunni frá Alþingi svo þeir sæju hvað þeir þyrftu mikið pláss. Móðir náttúra sér um þetta fyrir okkur fyrst við getum það ekki sjálf. Skemmtilegt…
föndur föndur föndur
ég datt í þá “grifju” í fyrra sumar að búa mér til nokkur prjónamerki úr vír og perlum. Svo var það fyrir stuttu að einhver prjónagúrúinn á Facebook spurði “aðdáendurna” hvort einhverjir hefðu búið til svona merki… ég asnast til þess að játa því og sýndi einhverjar myndir…. það varð til þess að ég fór…
Lögreglan að fara á taugum við gosstöðvarnar
Hér er ágæt dæmisaga af ruglinu og paranojunni sem hafa einkennt viðbrögð yfirvalda frá upphafi goss. Tek það fram að þetta er skrifað af reyndum fjallaleiðsögumanni en ekki einhverjum vitleysingi. Yfirvöld hafa ítrekað bannað ferðir vegna meintar hættu sem þeir geta ekki skilgreint og sem augljóslega byggir á misskilningi og vankunnáttu þeirra, sbr. þegar þeir…