-
75gr smjörlíki
- 3/4dl sykur
- 2 lítil egg
- 2 1/2 dl hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk vanilludropar
- 1 dl mjólk
Kakódeigið
1/3 af hvíta deiginu tekinn til hliðar og bætt við:
- 2 tsk kakó
- 1 tsk sykur
- 1 msk vatn
Aðferð:
Taktu þriðjung af kökudeiginu, láttu það í skál og hrærðu saman við það kakói, sykri og vatni. Þá færðu brúnt kakódeig.
Láttu helming hvítadeigsins sem eftir er í smurt mót og þá kakódeigið og efst afganginn af hvíta deiginu.
Bakaðu kökuna neðst í ofni við 175°c í 35-45 mín.
Þessi er úr uppskriftasafninu hennar ömmu Þuru (Þuríður Ágústa Símonardóttir)
[rating:4]