- 3 laukar
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 fræhreinsaður chilli pipar
- 1 flaska granini tómatssafi
- 1.5 L vatn
- 1-2 tsk kóríanderduft
- 1-2 tsk Worchestershire sósa
- 1 tsk chilliduft
- 2 dósir niðursoðnir tómatar
- 4 kjúklingabringur
- Nauta- eða grænmetiskraftur eftir smekk
- Olía til steikingar
Laukurinn, hvítlaukurinn og chilli piparinn eru látnir krauma í olíu í smá stund. Öllu nema kjúklingi er bætt út í og látið sjóða í 20 mín. Kjúklingurinn er eldaður sér, steiktur á pönnu og síðan bætt út í. Sósan hituð vel.
Borið fram með sýrðum rjóma, rifnum osti, doritos snakki og brauði.
Þessi er úr eldhúsinu hjá Maríu á Hnit