- 500gr Nautagúllas, frekar finna skorinn en hitt.
- 4-5 gulrætur skornar eftir smekk (ég saxaði þær),
- 1 vænn, fínt skorinn rauðlauk,
- 200-300gr kvartskornir sveppir.
Þetta er allt saman steikt saman í ólívuolíu á pönnu og kanski mulinn smá svartur pipar yfir. Þegar kjötið er orðið vel steikt og kanski aðeins farið að brenna, þa má bæta við 1 dós kreistum tómötum og steikt saman í 10 mín. en við stanslausa hræringu. Yfir þetta er hellt ca. líter af vatni. Svona er þetta látið malla í 45 mín. Þá eru nokkrar kartöflur brytjaðar niður og látnar malla með í ca. 15 mín. Þá er óhætt að bæta við 1 nautakraft og 1 grænmetiskraft. Eins er líka kominn tími á 1Msk tómatpúrru. Síðan er allt gumsið kryddað eftir smekk með svörtum pipar, salti og hverju því sem kokkinn langar til. Að lokum góð skvetta af rjóma og sósan látin sjóða aðeins niður. Ca. 20 Mín. Borið fram með Chiabatta brauði og sallati. Eins finnst mér gott að drekka bjór með þessu.
tekið af elmarinn.net