Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

Fiskisúpa

Posted on 10/09/200902/11/2018
  • 300gr beinlaust, roðflett fiskmeti
  • 2 laukar
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 stk lítill, rauður chilipipar
  • 1 meðalstór, sæt kartafla
  • 100gr sveppir
  • 2-3 msk tómatmauk
  • 2 lítrar grænmetis- eða fiskisoð
  • ólífuolía
  • 1/2 msk karrýduft
  • 1/2 tsk broddkúmen (cumin)
  • salt og pipar
  • ferskt kóríander

Skerið sætu kartöfluna í fremur litla bita, saxið lauk, hvítlauk, sveppi og chilipipar, steikið í olíunni, bætið við kryddinu. Bætið soði og tómatmauki út í og látið krauma þar til kartöflur eru orðnar meyrar. Smakkið til með salti og pipar. Skerið fiskmetið í bita og setjið út í um leið og potturinn er tekin af hitanum. Saxið kóríander og stráið yfir súpuna í skálinni.

Uppskriftin er fyrir um það bil 4.
Borið fram með góðu brauði.

3 thoughts on “Fiskisúpa”

  1. Pingback: Mánaðarmatseðill – Nóvember – Uppskriftasafn kjánaprikanna
  2. Pingback: Mánaðarmatseðill – Uppskriftasafn kjánaprikanna
  3. Pingback: Janúarmatseðillinn – Uppskriftasafn kjánaprikanna

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress