Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

helgarflakk

Posted on 16/02/200421/06/2005 by Dagný Ásta

jæja helgin var annsi annasöm eða virkar það allavegana þegar ég horfi yfir helgina ;o)
annars þá var hún bara skemmtileg.. tja. fyrir utan þarna nokkrar klst á laugardaginn sem voru herteknar af bókhaldi! bjakketíbjakk! aníhú

Iðunn skvísa á þakkir inni frá mér & Leifi því að henni tókst að draga okkur í eitthvað spilapartý til Loga sem var ekkert nema snilld!!!

það var reyndar bara spiluð 1 umferð af trivial þar sem skipt var Stelpur vs Strákar, en þar sem við vorum bara 3 dömurnar á svæðinu þá eignuðum við okkur L-in 2 (Loga & Leif) á móti þá 4 strákum ;o)

þannig að liðin voru: Rebekka, Iðunn, Ég og L-in 2 vs Óskar, Erik, Tóti & Ómar :o)

og auðvitað RÚLLUÐUM við þeim upp sko!!! Rímatsstrákar?

eftir glæsilegt spil þá breyttist allt í allsherjar gítarsöngpartý þar sem við nördarnir flettum upp gítargripum & textum á gúgle *heheheh* vá hvað þetta var gaman!!!

Rétt áður en við héldum af stað í bæjinn ákváðu Birna Dís, Áslaug & Róbert að slást í hópinn allavegana í bláenda sönggleðinnar. Hópurinn hélt svo á sitt annað heimili þessa dagana sem mun vera Celtic Cross.. æj að mínu mati (edrúgellunnar) þá datt gleðin algerlega niður í rass og við skötuhjúin stungum barasta af *blikk*

Allir þeir sem mættu á laugardaginn, takk fyrir kvöldið !!!

Sunnudagurinn var voða voða næs… góður bíltúr í Vogana & Grindavík.. ekkert smá næs… ég reyndar hömm var alger dóni og bankaði ekki upp á hjá ættingjunum *englabros* en aftur á móti tókum við slatta af skemmtilegum myndum í bíltúrnum, eða vorum við kannski bara að metast um hvor myndavélin væri í raun betri? mín(pabba) eða hans *heheh*

Kvöldið fór svo í bíóvesen.. sáum hina stórkostlegu mynd “The Last Samurai” sem er bara vá flott!
Ég, Leifur & Iðunn vorum samt á því að hún væri kannski ekki henntug þeim aldurshópi sem var mjög áberandi í salnum… jebb ekkert nema krakkar!

jæja ég læt þetta duga í bili :o)

May 2025
M T W T F S S
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme