Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

smá hugleiðing

Posted on 18/02/200421/06/2005 by Dagný Ásta

Dag einn var sérfræðingur í tímaskipulagningu að tala fyrir framan hóp viðskiptafræðinema. Til að koma merkingunni almennilega til skila notaði hann sýnikennslu sem nemendurnir gleyma aldrei.
Þar sem hann stóð fyrir framan þennan hóp af metnaðarfullu fólki sagði hann:

,,Jæja, þá skulum við hafa próf.”

Hann tók upp 5 lítra krukku með stóru víðu opi og setti hana á borðið fyrir framan sig. Svo tók hann um það bil 10 hnefastóra steina og varfærnislega kom hann þeim fyrir í krukkunni, einum af öðrum.

Þegar krukkan var full og ekki hægt að koma fleiri steinum í hana spurði hann:

“Er krukkan full?”

Allir í bekknum svöruðu já.

“Jæja” sagði hann.

Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu með möl. Því næst sturtaði hann smá möl í krukkuna og hristi hana um leið, sem orsakaði það að mölin komst niður í holrúmin á milli stóru steinanna.
Svo spurði hann hópinn aftur:

“Er krukkan ! full?”

Í þetta sinn grunaði nemana hvað hann var að fara.

“Sennilega ekki” svaraði einn þeirra.

“Gott!” svaraði sérfræðingurinn.

Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu af sandi. Hann hellti úr henni í krukkuna og sandurinn rann í öll holrýmin sem eftir voru milli malarinnar og stóru steinanna.
Enn spurði hann:

“Er krukkan full?”

“Nei!” æptu nemendurnir.

Aftur svaraði hann.”Gott!”

Hann tók því næst könnu af vatni og hellti í krukkuna þar til hún var alveg full. Svo leit hann á bekkinn og spurði.

“Hver er tilgangur þessarar sýnikennslu?”

Einn uppveðraður nemandinn rétti upp höndina og sagði:

“Tilgangurinn er að sýna að það er sama hversu full dagskráin hjá þér er. Ef þú virkilega reynir geturðu alltaf bætt fleiri hlutum við!”

“Nei” svaraði sérfræðingurinn.

“Það er ekki það sem þetta snýst um. Sannleikurinn sem þetta dæmi kennir okkur er þessi: Ef þú setur ekki stóru steinana í fyrst, þá kemurðu þeim aldrei fyrir.”

Hverjir eru stóru steinarnir í þínu lífi? Börnin þín? ! Fólkið sem þú elskar? Menntun þín? Draumarnir þínir? Verðugt málefni? Að kenna eða leiðbeina öðrum? Gera það sem þér þykir skemmtilegt? Tími fyrir sjálfa(n) þig? Heilsa þín? Maki þinn?

Mundu að setja STÓRU STEINANA í fyrst eða þú munt aldrei koma þeim fyrir. Ef þú veltir þér upp úr litlu hlutunum (mölin, sandurinn, vatnið) fyllirðu líf þitt með litlum hlutum sem skipta í raun ekki máli og þú munt aldrei hafa þann tíma sem þú þarft til að eyða í stóru mikilvægu hlutina í þínu lífi (stóru steinarnir).

Sem sagt, í kvöld eða í fyrramálið þegar þú hugsar um þessa stuttu sögu, spurðu sjálfa(n) þig þá þessarar spurningar:

“Hverjir eru stóru steinarnir í mínu lífi?”

Settu þá svo fyrst í krukkuna!

May 2025
M T W T F S S
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme