Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

mömmur, ömmur, frænkur, vinkonur og svo frv…

Posted on 05/04/201108/04/2011 by Dagný Ásta

  ein af ágústmömmunum setti saman “lítið” ljóð um daginn sem mér finnst annsi sniðugt 🙂  hún birti það á Facebook í gær

Ég er mamman

Barnið á brjóstið um leið og það fæðist
svo enginn í mafíunni að þér hæðist
Brjóst skaltu gefa í mánuði sex
guðhjálpiþér gefirðu barninu kex

Gefirðu pela ertu óhæf móðir
þótt barninu finnist þeir yfirleitt góðir
Mjaltavélina skaltu leigja
Brjóst þín eru almenningseiga

Það mega allir rýna og spyrja og pæla
af hverju grænn kúkur, gubb og æla
Hvað er barninu fyrir bestu?
Allir hafa skoðanir á flestu

Þó þú sért mamman þá veistu ekki neitt
“Jeminn barnið er allt of feitt”
“Hann hlýtur bara að vera svangur”
“Af hverju er hann svona langur?”

“Af hverju er barnið ekki á brjósti?”
Spyr fólk með hneykslisþjósti
Getur það ekki gefið mér frið?
Þetta kemur andskotans engum við!

Þegar þau eldast skánar það ekki
fólk heldur áfram með sína hrekki
“Fær hann ennþá pela og snuð?”
Endalaust andskotans helvítis tuð

Vilji fólk endalaust hnýta og jaga
skal það fyrst sína galla laga
Efast ég um að þeirra ráð
séu eitthvað betri ef að er gáð

Ég er ekki fullkomin mamma
ég á það til að öskra og skamma
En ég geri mitt besta, eins vel og ég kann
Að koma mínum börnum til manns

Meðan börnin mín brosa og gráta
sýna mér listir og gera mig káta
sofa og pissa og hlægja og gretta
er ég líklegast að gera það rétta

Mín eru börnin og ég er mamman
þú ert “bara” frænkan eða amman
ég veit þú vilt vel en hlustaðu nú
ég ætla ekki að gera allt alveg eins og þú

Á misjöfnu þrífast börnin best
og ég hef lesið mér til um flest
Vanti mig ráð kannski ég spyr þig
en hættu að agnúast út í mig

Því ég er mamman, huggarinn og knúsarinn, að eilífu, amen.
-Ninna Katrínardóttir

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme