Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

líkamsræktargúrúin

Posted on 29/01/2009 by Dagný Ásta

síðan WC opnaði hérna við hliðiná vinnunni minni hef ég tekið xtra mikið eftir því hversu miklu það virðist skipta þessi líkamsræktargúrú að leggja helst alveg í innganginum, amk eins nálægt honum og MÖGULEGA er hægt, skiptir engu máli hvort stæðin séu merkt eða ekki.

Við turtildúfurnar erum nýlega farin að kíkja inn í Laugar öðru hverju og þar er þetta ekkert skárra, verra ef eitthvað er að mínu mati…

EN ég sá eitt um daginn sem ég verð að viðurkenna hef ekki séð áður (etv afþví að ég hef aðalega farið í Baðhúsið…) …
Stelpur án gríns er ég ógeðslega halló að passa ekki upp á að fara nýmáluð inn í tækjasalinn ??

11 thoughts on “líkamsræktargúrúin”

  1. Sigurborg says:
    29/01/2009 at 16:14

    Jii Dagný….ekki segja mér að þú farir svo líka í lummó íþróttafötum í ræktina ???? omg omg 😎

  2. Gunnhildur Ásta says:
    29/01/2009 at 19:16

    Hahaha, nei alls ekki! Ég þoli ekki svona píur sem eru stífmálaðar og uppstrílaðar og svo er maður kófsveittur og algjörlega ómálaður við hliðina á þeim. Æ, eiginlega er mér samt alveg sama um þær, finnst þetta bara halló.

  3. Ása LBG says:
    29/01/2009 at 23:21

    bíddu ertu að segja mér að þú setjir ekki á þig make, maskara, kinnalit og augnskugga áður en þú ferð í ræktina? ert bara púkó eins og ég 😉

  4. Dagný Ásta says:
    30/01/2009 at 08:35

    haha, nei mér finnst þær einmitt svo fáránlegar sorry!

    meina þetta mun hvorteð er hlaupa í kekki og skemmtó þegar maður svitnar 😉 nema náttrúlega þessar gellur eru ekkert í því að svitna of mikið er það…

  5. Sigurborg says:
    30/01/2009 at 10:39

    Ég held að þessar stelpur séu ekkert mikið að fara í ræktina til að svitna sko 😉

  6. Dagný Ásta says:
    30/01/2009 at 13:35

    æj þetta eru bara fyndnar týpur!

  7. Rebekka says:
    01/02/2009 at 18:21

    Hrikalega hallærislegt að mála sig fyrir líkamsrækt! ég er oftast bara með málninguna frá því um morguninn en bæti ekki extra á 🙂

  8. Hulda says:
    03/02/2009 at 15:48

    ég er að fara í World Class á morgnana kl,. 6 og þá er enginn með make-up.. held að þetta séu bara leifarnar frá því í vinnunni eða eitthvað… en konur ættu í raun að hreinsa það af áður en þær fara að svitna, fer voðalega illa með húðina að svitna með allar þessar vörur á.. en svo getur auðvitað verið að þær bara svitni ekki neitt!

  9. Dagný Ásta says:
    04/02/2009 at 10:47

    leifar eftir daginn skil ég MJÖG vel en sú sem ég er að vísa í í færslunni var bókstaflega með snyrtibudduna á lofti og fór svo samferða mér inn í tækjasalinn þannig að hún var ekki bara svona sporty í klæðnaði á heimleið 😛

  10. Hulda says:
    09/02/2009 at 13:42

    WHAT?? haha… jeminn, ég hef séð svona einu sinni einmitt en það var einhver 16 ára skvísa. Ennnn.. ég var ennþá meira hissa þegar ég fór einu sinni í sund með hóp af stelpum úr Kvennó og þá málaði ein sig áður en við fórum ofaní laugina!! Hélt svo bara höfðinu uppúr allan tímann, haha…

  11. Dagný Ásta says:
    09/02/2009 at 13:46

    hehe, einmitt 🙂
    æj hefur það ekki líka alltaf loðað við WC að vera kallað kjötmarkaður 😉

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme