Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

það er..

Posted on 29/04/200729/04/2007 by Dagný Ásta

Ekkert að gerast.. tók mér samt góðan tíma í dag að rölta um Smáralindina með Sirrý og Dagnýju (og smá með Lilju), spurning hvort það breyti einhverju þegar líður á kvöldið 😉
Annars fannst mér mest fyndið að heyra hana nöfnu mína vera að tala um hvað henni fyndist ég of róleg! Komin heila 4 daga fram yfir settan dag… hvað á maður svosem að gera? Krílið kemur þegar það er tilbúið 😀

Annars voru heilmiklar spegúleringar í gangi á Smyrilsveginum í hádeginu, spurning hvort það þýddi eitthvað að reyna að kenna krílinu HókíPókí og ath hvort legið yrði þá eitthvað pirrað og þvingaði krílið út *haha* sæji þá félaga í anda vera að reyna að koma Hókí Pókí inn 🙂

Btw;
Helga frænka: ég veit ekki alveg með svona reglulegri uppfærslu – held ég myndi ekki nenna því 😉

3 thoughts on “það er..”

  1. Hafrún says:
    30/04/2007 at 11:02

    jæja… ætlar krílið ekki að láta sjá sig… 🙂
    hafið það sem allra best… og hlakka til að hitta nýja meðliminn… 🙂
    væri til í að fá aðgang að orminum… sendir kannski á mig hafrun.palsdottir [hjá] bifrost.is

    kossar og knús :*

  2. Ásta Lóa says:
    01/05/2007 at 02:10

    Já já allri hafa gott af smá rölti , líka ormur litli, hann þarf að þekkja hlóðið… he he smá grín….
    En hvað með smá afmæli 1 Maí… mér findist það snild… Mér hefur allaf þótt þessi dagur svoooo leiðinlegur. Það eina sem mundi bæta hann upp væri að þekkja einhvern sem ætti afmæli þarna svo maður geti kíkt í alvöru kaffi á viðkomandi bæ. En þetta er auðvita pjúra eigin hagsmunir…. eða bara eigingirni ….. eða bara það allra vesta… frekja af minni hálfu… he he (játa það þó)…. en gangi þér vel sama hvaða dag það veður.

  3. Gunnhildur Ásta says:
    01/05/2007 at 11:51

    Hmm, ekkert blogg í tvo daga! Nú hlýtur eitthvað að vera að gerast 😉

    Hehe, ef ég held svona áfram (sbr. komment við síðustu færslu) þá endar það með því að ég hef rétt fyrir mér 🙂

    Vona að allt gangi vel

    Kveðja frá Danmörku

    Gunnhildur Ásta

Comments are closed.

May 2025
M T W T F S S
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme