Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

ætlar þetta engan enda að taka ????

Posted on 04/04/200621/03/2011 by Dagný Ásta

Leifur er enn með hitavellu og ég rétt kom mér í vinnu og heim.. *bjakk*
Mér þykir þetta nákvæmlega EKKERT skemmtilegt! langar að vera laus við þennan hósta og slappleika… ég efa það ekki að Leifur er alveg 150% sammála mér með það!

Annars þá erum við skötuhjúin bara búin að liggja hérna upp í sófa/bælinu og horfa á lélegt sjónvarp og vorkenna okkur *heheh* Að vísu þá er ég búin að vera að dunda mér við að sauma í stóru kisumyndinni minni. IK: ég er eignlega að verða búin með hana… manst hvar ég var á fimmtudaginn.. well ég á bara eftir að klára að sauma þetta græna í kring 😉
Ég held ég þurfi að fara að fjárfesta í nýrri mynd… eða páskadúk? hmm alveg hugmynd. nema pant ekki vera jafn lengi með þann dúk og ég var með jóladúkinn! kemur í ljós hvað ég geri… á nokkur lítil verkefni hérna sem ég get alltaf dottið niðrí.. fleiri snjókarla og vettlinga frá Mill Hill og svo keypti ég reyndar líka alveg ferlega sæta snjókarla e-n tíma í haust sem ég get gert og geymt fráganginn á þeim þar til ég kem heim því að þar liggur dáldill saumaskapur á bakvið 🙂

btw pabbi, myndirnar eru komnar, set þær í póst fljótlega!

5 thoughts on “ætlar þetta engan enda að taka ????”

  1. Strumpan says:
    04/04/2006 at 15:36

    Kem með Lýsi handa þér svo þið náið nú þessum óþverra úr ykkur! Þýðir ekkert að liggja í bólinu þegar skvísurnar hittast!!!!!!

  2. Dagný Ásta says:
    04/04/2006 at 16:46

    hehe, if that would only do wonders 🙂

    annars þá vantar mig aðalega núna orku…

  3. Ása says:
    04/04/2006 at 18:51

    þetta gengur ekki lengur hjá ykkur – það er að styttast í að druslurnar leggi heimilið undir sig og þá þýðir ekkert að vera lasin……..

  4. Sigurborg says:
    04/04/2006 at 18:53

    Þetta eru ekkert smá flottar myndir hjá þér….látið ykkur batna 🙂

  5. Dagný Ásta says:
    04/04/2006 at 21:56

    já þið druslurnar verðið bara að hresssa okkur við ef við verðum ekki búin að losa okkur við þennan viðbjóð!

    Sigurborg; takk sæta 🙂

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme