Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

halló?

Posted on 17/01/200621/03/2011 by Dagný Ásta

jæja skuldar maður ekki smá færslu hérna.. jú ég held það 🙂

Við erum lítið búin að vera að gera af okkur en samt slatta 🙂

Leifur er aðallega búinn að vera að njóta þess alveg út í eitt að vera í fríi frá skólanum. En hann byrjar aftur í lok mánaðarins. Hann tók sig til um daginn og fékk 3Dstudio hjá Helga og er búinn að vera að fikta í því forriti heilan helling undanfarið.

Ég hinsvegar er búin að vera að vinna næstum því frá því að við komum heim. Lenti í smá veseni í byrjun en það er vonandi komið í lag. Ferlega leiðinlegt að standa í svona stappi út af svona veseni.

Ég er búin að vera ágætlega dugleg við að reyna að klára útsaumsdótið mitt.. er bara með 4 verkefni í gangi *úps* er að reyna að klára jóladúkinn, myndina sem tengdó gáfu mér í jólagjöf, bókamerki handa LS og svo liggur hérna hjá mér mynd af Tatty Teddy sem ég er eiginlega búin með að öllu leyti nema afturstingurinn.. legg einhvernvegin ekki í hann..

Skruppum í smá heimsókn til Önnsku á föstudaginn, reyndar bara í 1 nótt en það var samt bara gaman 🙂 fínt að letikastast aðeins einhverstaðar annarstaðar en heima hjá sér 🙂 Elduðum saman góðan mat, endurbættum hann seinna kvöldið og fórum svo í ævintýralega lestarferð heim.. vorum ss ekki komin heim til okkar fyrr en rétt fyrir 3 aðfararnótt sunnudags og ég átti að mæta í vinnu næsta dag *úps!*

Það er nú ekki margt á döfinni hjá okkur á næstunni en við stefnum á að vera enn duglegri við að kíkja hérna á umhverfið í Holte, erum búin að fara í nokkra labbitúra en langar að fara í aðrar áttir, erum stundum svolítið vanaföst hvert við förum *heh* það er bara eitthvað við það að labba í skóginum, notalegt.

Var að bæta inn myndum í albúmið ef einhver hefur áhuga 🙂
Héðan og þaðan í Janúar – aðallega myndir úr göngutúrum 😉
Svíþjóðarkíkj – frá heimsókninni til Önnsku
útsaumur – nýjar myndir í nokkrum möppum


4 thoughts on “halló?”

  1. Linda litlaskvis says:
    17/01/2006 at 09:44

    Ég vildi óska að ég gæti sagst vera bara með 4 verkefni í gangi *roðn*
    Flottur Mill Hill sokkurinn hjá þér! Og ég hlakka til að sjá meira af jóladúknum.

  2. Dagný Ásta says:
    17/01/2006 at 13:09

    ég nefnilega vil helst klára það sem ég byrja á.. leiðast ókláruð verkefni 😉

  3. Lára says:
    18/01/2006 at 04:04

    Sæl…

    Ein Lítil Spurning Til Ykkar SkötuHjúana 😉

    Hvað Ætlið Þið Að Vera Lengi Í Útlandinu Góða ??

    Ein Smá Forvitin !!!!!

  4. Dagný Ásta says:
    18/01/2006 at 11:05

    við flytjum heim í vor 🙂

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme