Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

andleysi

Posted on 21/11/200521/03/2011 by Dagný Ásta

Ég er voðalega andlaus í bloggmálum þessa dagana.. mér finnst ég reyndar ekki vera ein um það þar sem blogghringurinn minn er óttarlega daufur eitthvað. Þannig að ég er bara búin að sitja og sauma í mill hill myndinni minni 🙂 þarf reyndar að taka mig á, setja Mill Hill til hliðar og halda áfram með jóladúkinn minn.. einhvernvegin er samt miklu skemmtilegra að gera þessi litlu verkefni, þau eru fljótlegri *haha* er komin ágætlega langt með snjókarlamyndina mína, er búin að sauma alla krosssaumana og er að festa perlurnar í núna..
Annars, ef ég gef allt í jóladúkinn núna þegar ég er búin með þessa mynd þá ætti ég að ná að vera búin með dúkinn þegar mamma kemur oooooggg það þýðir bara að ég ætti að ná að geta platað mömmu til að hjálpa mér að ganga frá honum 🙂
Ég var að leita að rammanum sem mælt er með við Mill Hill myndina mína og viti menn ég fann einhverja búð í San Antonio (borgin sem Ásta frænka býr í) sem selur þessar vörur, ekki nóg með það heldur er þessi tiltekna búð staðsett í næstu götu við Renner Dr (gatan sem Ásta býr við)! semsagt NW Millitary (eða heitir hún það ekki pabbi, gatan sem pósthúsið er við?) bara fyndið 🙂 ég hef semsagt mjög góða leið til þess að panta þetta og láta senda til Ástu eða hreinlega að hringja í Ástu og ath hvort hana langi ekki í bíltúr *haha* Ég reyndar veit að Linda frænka væri meira en lítið til í að fara með henni í þessa búð enda er hún krosssaumskerling líka 🙂 Hún gaf mömmu svo flotta mynd einusinni og sendi mér alveg rosalega flotta kisumynd sem ég reyndar veit ekki alveg hvað ég á að gera við… ætli ég endi ekki á að setja hana sem púða.. finnst hún ekki alveg vera svona uppáveggmynd. en mömmu mynd er það.. og miklu meir en það 🙂

allavegana þá er þetta staðan á Mill Hill myndinni minni.. ætli ég haldi ekki bara áfram fyrst ég & flestir aðrir eru svona andlaus í blogginu 😉

4 thoughts on “andleysi”

  1. Linda litlaskvis says:
    22/11/2005 at 08:58

    Úúúú!!! Rosalega flott!
    Hlakka til að sjá hana fullkláraða!

  2. Hafrún Ásta úr allt í kross says:
    22/11/2005 at 10:24

    lítur vel út so far.

  3. Ása says:
    22/11/2005 at 13:06

    þetta með bloggið er að gera mig geðveika – það kommenta voðalega fáir og allt er hálf dautt……
    Ég er bara að kvarta og kveina – þetta er eiginlega þriðjudagur til MÆÐU og mig langar í eitthvað GOTT að borða – er að spá í að fara á Sunset og fá mér bát….. En ég er víst að þykjast vera að skrifa ritgerð – svo ég verð að halda áfram…..

  4. iðunn says:
    22/11/2005 at 19:40

    þetta með bloggið er svoooo satt. ég var að fara blogghringinn núna í fyrsta skipti í nokkra daga og maður hefur bara ekki misst af neinu. sorg og synd og skömm. og ég er ekkert skárri sjálf.

    sakna þín! knús og klemm 🙂

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme