Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

þetta og hitt, hitt og þetta

Posted on 04/10/200521/03/2011 by Dagný Ásta

strembin helgi að baki..
fórum í partý til Önnsku í Lundi, fékk loksins að hitta megnið af videosviðshópnum úr MS á einum stað, vantaði mjög fáa. Dáldið fyndið hvað þessi vinahópur LS er ólíkur hinum.
Tókum auðvitað lestina alltof seint heim þannig að við komumst ekki heim fyrr en um 3 leitið og þurftum að taka síðasta spölinn með taxa. úff púff mætti svo í vinnuna daginn eftir! En þetta var alveg þess virði 😀 alltaf gaman að hitta fólk sem þekkti Leif á steypuárunum.. ég þyrfti eiginlega að skora á hópinn að taka sér steypu helgi hérna … mér skilst að það vanti svo fáa að það þarf bara Axel hingað út og þá er meirihlutinn á staðnum! já ég held það barasta.

Ég hér með skora á Leif, Helga, Önnsku, Bjarka og hvern þann sem kemst af þessum hópi (Axel þú splæsir bara á þig 1stk köbenferð) í eitt stk steypuhelgi! nýtt myndband og skemmtilegheit!!!!

Annars þá er bara undirbúningur heimsóknatarnarinnar miklu í gangi.. þvo rúmmfötin, passa að þetta sé til og svo hitt.. muna að kaupa nýmjólk fyrir BÓL og svo framvegis.. bara gaman 🙂 gaman að reka hótel 😀 hey ég bara farin að vera á tvöföldum hótelvöktum þessa dagana! Frétti reyndar af því áðan að litlu hefði munað að fjórði helgargesturinn hefði bæst við núna um helgina.. hefði sko EKKI verið leiðinlegt!!! Eva & Sirrý þið komið bara eftir áramót!!! það er hér með bókað! já og Lilja þú kemur þá bara aftur! eða vorum við ekki búnar að bóka páskana???

Ég er búin að komast að því að ég er ekk eini starfsmaðurinn sem er ekki að fíla þetta fuglatíst á hótelinu, var að tala við Santosh áðan og hann sagði mér að hann fílaði enganvegin að vinna á ganginum mínum því þar væri of hljótt og þetta tíst gerði hann bara crazy *heh* húmor.. mér finnst hinsvegar voðalega þægilegt að vinna á ganginum mínum, get auðveldlega fylgst með því þar þegar fólk er að fara því að það er enginn óþarfa umgangur þarna eins og á hinum göngunum því að þessi er svona út í enda 🙂

2 thoughts on “þetta og hitt, hitt og þetta”

  1. Annska says:
    04/10/2005 at 21:37

    Ég er go ef restin er gó. Eitt stykki camera… no script… endalaust rugl… bó seigir gó… or something… steik í haus 🙂

  2. Dagný Ásta says:
    04/10/2005 at 22:04

    hehe, veit að LS er game 🙂

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme