Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

Stuepige!

Posted on 15/09/200502/01/2010 by Dagný Ásta

ekki tók atvinnuleitin langan eða strembin tíma 😉 mjög líklega vegna þess að mér var nokk sama hvað ég færi að vinna við.. treysti mér kannski ekki alveg í að fara að afgreiða í nettó en stelpan er komin með vinnu!

Sá auglýsingu í blaðinu sem kom um helgina þar sem var verið að auglýsa eftir “Stuepiger” sem er í rauninni ekkert annað en herbergisþerna á hóteli. Gefin var upp símatími í vikunni og mín hringdi… er reyndar ekki búin að gera margt annað.. ég er jú búin að fylla út eitthvað CV á netinu en þetta símtal gerði sumsé sitt 😛 fyrsta djobbið sem mín sótti um *hah* æj ég veit að þetta er ekkert framtíðarstarf enda er ég ekki að leita að því hérna í Danmörkinni.. meira að leita eftir einhverju að gera frekar en eitthvað annað 😀

Ég fékk úthlutað 25 klst á viku og byrja á morgun! skv samningnum byrja ég alla morgna kl 8 en það getur breyst ef þeim vantar fólk að þá þurfi ég að mæta fyrr.. allt að kl 6 á morgnanna (óboj) en stóri plúsinn er sá að ég er yfirleitt ekki lengur en til kl 2 á daginn.. og það er eiginlega í síðasta lagi 🙂 ekki slæmt.

6 thoughts on “Stuepige!”

  1. Ásta Lóa says:
    15/09/2005 at 23:19

    hej til hamingju með vinnuna frænka, þetta er þá alltaf byrjunin og mér sýnist nú vinnutíminn vera salla fínn. þetta er sko ekki íslenskur vinnutími. 🙂
    enn gangi þér vel

  2. Elsa says:
    16/09/2005 at 09:12

    Til hamingju með jobbið! Vonandi er Danmörk að standa undir væntingum 😉

  3. Linda Rós says:
    16/09/2005 at 11:17

    Til hamingju með starfið 🙂

  4. Gunnhildur Ásta says:
    16/09/2005 at 11:55

    Tillykke 😉

    Mig grunaði að þú værir í atvinnuviðtali þegar ég las síðustu færlsu og hafði svo bara rétt fyrir mér 🙂

    Þú skalt bara hafa gaman að þessu og svo er líka bara gott að komast út fyrir og kynnast nýju fólki. Þetta er líka langbesta leiðin til að læra almennilega dönsku 🙂

  5. Hafrún says:
    16/09/2005 at 13:45

    Til hamingju med nýju vinnuna… 😉

    allt gott ad frétta frá Barcelona… 😉 gengur voda vel í skólanum og hef tad rosalega gott.. 😉

    bid ad heilsa í bili…

  6. Dagný Ásta says:
    16/09/2005 at 22:32

    takk stelpur 🙂

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme