Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

segjiði svo að ég hugsi ekki vel um karlinn *glott*

Posted on 10/09/200502/01/2010 by Dagný Ásta


haldiði ekki að mín hafi ekki bara skellt í pönnsur handa karlinum í morgunmat 🙂 ekki beint kannski venjulegar pönnsur heldur var þetta eitthvað amerískt dótarí sem bragðaðist afbragðs vel með smjeri og osti, sumsagt hálfgerðar skonsur 🙂 já svona á maður það til að vera hómí!nb erum búin að þrauka hérna 2 ein í kotinu í heilar 2 vikur *Haha* hver dagur talinn með þannig að þetta ættu þá að vera eiinnn, tveeeir og tíu plús fjórir plús æj ég ruglaðist 😉 allavegana þá er okkur búið að takast að vera hérna eins og ég sagði í heilar 2 vikur án þess að gera hvort annað spinnegal þannig að þetta hlýtur að ganga upp hjá okkur… eða haldiði að ég þurfi að halda áfram að dekra við hann svona á laugardagsmorgnum ?

6 thoughts on “segjiði svo að ég hugsi ekki vel um karlinn *glott*”

  1. Sigurborg says:
    11/09/2005 at 01:35

    mmm…þú mátt alveg koma hingað og gera svona handa mér á hverjum morgni !! 😀 hehe….annars skulda ég þér nú eiginlega köku fyrir að vera nr. 3000 á blogginu mínu ;o)

  2. Eva says:
    11/09/2005 at 16:58

    Namm, við Elías erum dugleg að elda okkur svona í morgunmat um helgar, en þá með smjöri, sýrópi, hunangi og beikoni! 🙂
    Annars finnst mér að hann eigi að stjana við þig, spurning hvort bróðir hans geti ekki tekið hann í tíma, hann er orðinn ansi góður í þessu 😉

  3. Ásta Lóa says:
    11/09/2005 at 18:43

    já sko mína, svakalega ertu dugleg. en er ekki tími til að hann dúlli við þig einu sinni eller hu.? já mér líst vel á þetta hja´ykkur og sé að þið eigið mikla framtíð fyrir ykkur first þetta hefur gengið í tvær vikur, he he he. nei í alvöru gangi þér vel. Var annars að frétta að Sigga systir er að fara til Köben núna 23 til 28 sept,ég var að hvetja hana til að droppa til þin í kaffi. íti á hana ef þú vilt. 😉

  4. Dagný Ásta says:
    11/09/2005 at 19:28

    SS já bakaru ekki bara köku handa mér í OKT?! 😉

    Eva & Ásta Lóa voðalega hafiði litla trú á sæta stráknum 😉 SVIK hafa náð að ala þetta upp í krökkunum sínum 😉 þau kunna þetta greinlega öll 😀

    Ásta Lóa, þú mátt alveg láta Siggu fá addressuna hérna 🙂 hún er meira en velkomin í heimsókn 😉

  5. Pabbi says:
    12/09/2005 at 12:25

    Alltaf vitað að þú gætir þetta . Það hefur bara verið svo miklu berta og auðveldara að láta mömmu gera þetta .Hún klikkar aldrei eins og þú veist. Ég sakna þín-Ykkar kveðja

  6. Dagný Ásta says:
    12/09/2005 at 17:31

    heh, já það er rosalega þægilegt að láta mömmu gera þetta 😉 hinsvegar hlýt ég að hafa lært eitthvað af henni í gegnum árin 😉

    og þér líka, er búin að vera í smiðshlutverki hérna í dag 🙂

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme