Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

skógarferð

Posted on 31/08/200502/01/2010 by Dagný Ásta

Við ákváðum að rölta um hverfið eftir skólann hjá LS í gær. enduðum reyndar á því að labba helling um skóginn hérna í “bakgarðinum” hjá okkur 🙂 ferlega kósí að rölta svona um. ekki skemmdi það fyrir að það var alveg snilldar veður, glampandi sól og hiti 🙂

Skrítið hvernig skordýralífið er allt öðruvísi hérna, sáum í göngutúrnum okkar í gær helling af fiðrildum, slatta af drekaflugum og hellings helling af HUGE sniglum!! ég er að tala um að sniglarnir voru svo langir og sverir að þeir voru eins og það væri búið að höggva putta af einhverjum *Heh* segji svona…

skoðuðum okkur líka aðeins um í bænum, ég hef heyrt alveg rétta lýsingu á þessu hverfi.. húsin hérna eru mörg hver svo stór og “merkileg” að það er alveg á hreinu að þetta er einhverskonar millahverfi. t.d. var einn þarna með tennisvöll í garðinum.. nice!

Ég tók helling af myndum í göngutúrnum, á bara eftir að setja þær í tölvuna 🙂 læt vita þegar þar að kemur 😉

6 thoughts on “skógarferð”

  1. Iðunn says:
    31/08/2005 at 13:49

    iií, mér finnst það nú bara ekkert merkilegt.. ég er með heila götu í bakgarðinum hjá mér.. og aðra götu í forgarðinum.. og hver vill sko hafa tennisvöll í bakgarðinum? glatað.. :-p

    humm.. reyndar held ég að raunverulega myndi ég segja bara “vó, gott hverfi, mar” 😉

  2. Dagný Ásta says:
    31/08/2005 at 14:00

    hehe ég er líka með götu í bakgarðinum… og eplatré.. og íkorna!!! ogggg já.. skógurinn er eiginlega meira í hliðargarðinum (a)

  3. Inga says:
    31/08/2005 at 14:04

    Voru þetta appelsínugulu spánarsniglarnir sem allir eru svo hræddir um að taki sér bólfestu á Íslandi? Það hafa að vísu sést tveir, en það getur verið þjóðsaga. Þeir eru víst að verða algjör plága víða.

  4. Dagný Ásta says:
    31/08/2005 at 14:09

    sumir voru appelsínugulir já.. aðrir svartir. ég veit ekkert hvort þeir séu plága eða ekki.. þeir eru bara bjakk 🙂
    sérð myndir fyrr en síðar 🙂

  5. Halldóra says:
    31/08/2005 at 15:44

    passiði ykkur á blóðsugunum, sérstaklega í háu grasi…ógeðslegt!

  6. Dagný Ásta says:
    31/08/2005 at 16:34

    já vá við höldum okkur á göngustígunum takk fyrir! 🙂

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme