Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

miður mín

Posted on 02/06/2005 by Dagný Ásta

ég er alveg handónýt… höndla ekki þegar fólk er að hringja hingað og rífast og skammast í gríð og erg. Sérstaklega þegar það er varðandi hluti sem ég get nákvæmlega ekkert gert að. Ljúga hérna upp á samstarfsfólk mitt og mig, það er ekkert smá erfitt að sitja undir því og reyna að gera gott úr hlutunum… langar mest heim að grenja eins og er 😥

Það er þó bót í máli að ég veit að þessi einstaklingur sem á sök að máli núna er ekki alveg í lagi í hausnum, það er kannski “understatement” enda er hún kexrugluð… Þekki hana ekki bara héðan heldur var hún nágranni minn fyrir mörgum árum (guði sé lof að hún flutti) og ég kynntist henni & dóttur hennar sem krakki.. að var bara horror… ég dauðvorkenni stelpunni hennar og auðvitað stráknum líka. Þau eru bæði stórskemmd eftir hana. Ég hef heyrt af henni á ýmsum stöðum, m.a. veit ég að hún úthúðar öllum þeim sem gera ekki henni eða hennar í vil. Allir og allt er á móti henni í lífinu býst ég við…
En það er hreinlega ekki mér að kenna að hennar líf sé í rugli, ég þekki hana ekki það vel:roll:

4 thoughts on “miður mín”

  1. Helga frænka says:
    02/06/2005 at 13:59

    brostu framaní heiminn og þá mun heimurinn brosa framaní þig 🙂
    Til hamingju með Mömmu þína (45) ég fór nú að hugsa hún Jóhanna er nú eldri en 45 ára hummm

    kveðja
    Helga frænka ekki alveg nógu klár í bloggi

  2. iðunn says:
    02/06/2005 at 14:16

    til hamingju með múttukrúttu!

    leiðinda fólk sem er leiðinlegt við mann. það á bara að gefa því eina matskeið af súrri mjólk og athuga hvort það skánar ekki.

  3. Dagný Ásta says:
    02/06/2005 at 14:25

    takk stelpur,
    ég er búin að gera mitt besta í dag, fáránlegt samt hvað sumt fólk nær að kremja mann þó það þekki mann ekki baun 😉

    Mútta krútta er ekki nema 45 sko! 😉

  4. majae says:
    02/06/2005 at 18:56

    úff ég skil þig svo. Svo er fólk svo ósvífið stundum í síma að manni blöskrar.

Comments are closed.

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme