Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

styttist

Posted on 06/01/2005 by Dagný Ásta

Fyndið hvernig allir virðast vera á leið á sama staðinn á svipuðum tíma… Rebekka & Ommi fóru í gær til London og stoppa í 2 daga eða svo áður en þau halda lengra út í heim… jámm þau eru bæði að flytja úr landi… Rebekka til Spánar í einhverja mánuði og Ommi til Kanada að læra eitthvað tölvutengt. Svo í næstu viku fara Iðunn & múttan hennar til London og verða þar yfir helgi, bara hafa það kósí mæðgurnar *næs* og svo er röðin komin að okkur skötuhjúunum 🙂 og í dag eru akkúrat 2 vikur í að við förum…

meiraðsegja akkúrat eftir 14 daga verðum við ný farin af stað af flugbrautinni :o) Flugið er nefnilega kl 9 að morgni og eigum að lenda um hádegi… svo þegar við komum heim þá er flugið um 10 að kvöldi og komum á klakann um 1 leitið þannig að við fáum alveg allan fimmtudaginn til þess að njóta okkar og allan mánudaginn líka :o) *jeij* verst að á mánudeginum þá þurfum við að redda okkur geymslu fyrir ferðatöskuna en hey það reddast! eins og allt annað :o)

Leifur sá um að bóka hótel handa okkur, fann eitthvað hótel sem heitir Mayflower.. hmm ekki kannski alveg það ódýrasta sem fannst á markaðnum en samt með því ódýrara sem uppfyllti kröfurnar hjá okkur. passar líka ágætlega að það er lestarstöð eiginlega akkúrat þarna… eða svona “tube”.
*jeij* þetta verður bara gaman og ég hlakka alveg ótrúlega til að fá að stinga svona af með sæta stráknum :o)

October 2025
M T W T F S S
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme