Ég og Leifur eyddum góðum tíma í gærkveldi við að klára að raða myndunum rétt upp *jeij* náðum að klára það!!
Hennti öllum 822 myndunum inn á myndasíðuna mína á bara eftir að klára að skrifa við þær og henda einhverjum þeirra út… enda óþarfi að hafa allar myndirnar inni
Ég er líka langt komin með ferðasöguna en hún er bara heima.. þannig að ég verð að klára að vinna í henni þegar ég kem heim *jeij* fer þá bara í staðinn að dunda mér við myndirnar… klára að skrifa við þær og svona… vonandi get ég þá opnað albúmið fljótlega (þ.e. ef það verður ekki brjálað að gera í vinnunni *hehe*