Skip to content

hvað ert að bralla…?

Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða
Menu

141/365

Posted on 22/05/201901/07/2019 by Dagný Ásta
141/365 elsku litla ljúfan útskrifuð úr leikskólanum ♡

Stór stund í fjölskyldunni í dag en elsku litla ljúfan útskrifaðist úr leikskólanum ♡

Verður hálf skrítið að eiga bara skólabörn í haust 🙂

Austurborg mun ætíð eiga stórt pláss í hjörtum okkar enda búin að vera stór partur af fjölskyldunni undanfarin 10 ár.

Skrítið að hugsa til þess að þegar Oliver byrjaði á leikskólanum í febrúar 2009 var Ása Júlía að hreiðra um sig í bumbunni og fáir vissu af tilvist hennar. Síðar mætti Sigurborg Ásta á svæðið og það lá beinast við að hún myndi einnig fara á Austurborg þegar þar að kæmi.

Þegar Oliver hætti þá var Ása Júlía að sjálfsögðu enn á leikskólanum en hún hætti svo þegar leikskólinn fór í sumarfrí sumarið 2015 og rúmri viku eftir að leikskólinn hóf störf aftur eftir sumarfrí mætti Sigurborg Ásta í aðlögun þannig að við höfum verið nánast óslitið frá í febrúar 2009.

Stór kafli sem tekur við hjá fjölskyldunni í haust og jafnframt afskaplega spennandi fyrir litla dömu <3

June 2025
M T W T F S S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« Dec    

eldra

  • Annáll 2024
  • Protected: Staðan
  • Protected: Smá jákvæðni
  • Protected: Eitt skref áfram tvö aftur…
  • Protected: heimsókn

Categories

  • annáll (18)
  • Bakstur (55)
  • Brúðkaup (18)
  • daglegt röfl (3,450)
  • Danmörk (233)
  • ferðalög (108)
  • fjölskyldan (615)
  • Fjölskyldubrölt (1)
  • Föndur (37)
  • Framkvæmdir (28)
  • Göngutúr (1)
  • handavinna (43)
  • heilsa (135)
  • Hreyfing (1)
  • Krossaumur (9)
  • Matseld (30)
  • myndir (980)
  • PAD (363)
  • Prjón / Hekl (105)
  • Skóladót (25)

Meta

  • Log in
  • Entries feed
  • Comments feed
  • WordPress.org
© 2025 hvað ert að bralla…? | Powered by Superbs Personal Blog theme
Menu
  • Heim
  • Óskalistinn
  • Forsíða