Category: daglegt röfl
helgarstúss…
æj hvað ég vildi óska þess eð þessi helgi væri 1 degi lengri… hefði allavegana ekkert á móti því… EN reyndar þá styttist óðum í að ég stingi þennan yndislega klaka af og skelli mér í Lundúnaborg, vona bara heitt og innilega að við tökum ekki snjóinn með okkur… hann má alveg verða eftir hérna…
hver er memm???
mig langar að prufa að fara á “scrapp” námskeið…svona til þess að ath hvort þetta sé e-ð sem ég gæti týnt mér í *hóst* mjög líklegt reyndar sýnist mér á öllu saman… held að það væri allavegana gaman að prufa að fara á svona námskeið, gera eina síðu og sjá hvort þetta heilli Fann byrjendanámskeið…
stolnar breytingar
Ég tók mig til áðan og fór að fikta í albúminu mínu… ákvað að prufa að stela hugmyndinni hennar Iðunnar og flokka myndir eftir ártölum í stað þess að flokka eftir því hvernig atburði myndirnar tilheyra. Vonandi nær maður að fylgjast almennilega með þessu svona…
piparkökuhúsamyndir
þetta var víst soldið fast… Leifur & Sigurborg eiga pínu erfitt með þetta en hafðist á endanum… Hnífurinn kominn til aðstoðar 🙂 Eins og ég sagði þá var dáldill hasar í Álfheimunum í gær *heheh*
húsið brotið
Systkinin í Álfheimunum tóku sig til fyrir jól (og reyndar yfir jólin alveg) og bjuggu til 1 stk piparkökuhús… þetta var ekkert venjulegt piparkökuhús og hefði vel átt heima í kötlukeppninni.. hús með öllu… eldhúsinnrétting, borð, stólar, jólatré og auðvitað JEPPI & bílskúr!!!! þau eru dáldið rugluð 😉 allavegana þetta hús var rosalega flott.. og…
Ég get ekki sagt að mér þyki þessi nýji Kristall mjög eftirsóknarverður, amk ekki sá græniMyndina sendi Dagný Ásta Powered by Hexia
frímerkjapælingar
akkurru getum við hérna á klakanum ekki tekið upp eins frímerkjafyrirbæri og kaninn… þar er hægt að kaupa bara frímerki á límmiðaspjaldi og þá sleppur maður við þetta ógeðsbragð sem fæst af því að sleikja frímerkin *bjakk* Ég er reyndar með einhvern svona “bleytara” þannig að ég þarf ekki að sleikja frímerkin en samt.. finnst…