Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

kjúklingabringur í tortillakökum

Posted on 24/01/200820/09/2017
  • 3 kjúklingabringur
  • 1/2 laukur
  • 1/2 – 1 rauðlaukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 græn paprika
  • 1 dós salsasósa
  • 1/2 dós ostasósa
  • sýrður rjómi (getur verið gott að hafa e-n bragðbættann)
  • rifinn ostur

Kjúklingurinn er steiktur á pönnu og kryddaður eftir smekk, sett til hliðar.

Laukur og papríka steikt, salsasósunni og ostasósunni bætt þar út í og látið malla í smá stund.

Kjúklingnum bætt við.

Sett í Tortillakökurnar og raðað í eldfast mót (einnig hægt að raða þessu upp eins og lasagna),  áður en þessu er stungið inn í ofn að þá er sýrður rjómi og rifinn ostur sett yfir, einnig getur verið gott að strá t.d. graslauk yfir ef sýrði rjóminn er “hreinn”.

Ofninn hitaður í 200°c og látið vera þar til osturinn er bráðnaður.

Aðeins of mikil græðgi í fólkinu mínu – fékk ekki að taka mynd fyrr en allir voru búnir að setja á diskinn sinn 🙂

Meðlæti:

  • Hrísgrjón
  • Ferskt salat

[rating: 3,5]

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress