Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

Góða Kryddkakan

Posted on 29/04/200830/03/2026
  • 200gr smjörlíki (smjör)
  • 2dl kaffi
  • 3 egg
  • 350gr hveiti
  • 300gr sykur
  • 3 tsk lyftiduft
  • 1 1/2 tsk kanill
  • 2 tsk negull
  • 1 1/2 tsk engifer
  • EÐA 2msk Kakó í stað kryddana

Kaffið og smjörlíkið hitað saman. Egg og sykur er þeytt vel. kaffið og smjörl. látið saman við það og þeytt rétt aðeins. Þá er þurrefnunum blandað vel saman við með sleif.

Hér má sleppa kryddtegundunum ef vill og setja þess í stað 2 msk af kakó.

Deigið er síðan látið í smurða ofnskúffu.

Bakast í ca 15 mín við 200°c hita.

Á meðan kakan kólnar er kremið græjað

  • 4 dl flórsykur
  • 3 tsk kakó
  • 3 msk smjör/smjörlíki
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 dl kaffi

Þurrefnunum hrært vel saman. Þá er 1 tsk af vanilludropum látin út í og 1 dl af kaffi hrært saman við. Smurt á kökuna og kókosmjöli stráð yfir.

Þessi er úr safninu hennar mömmu.

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Log in
©2026 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress