Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

jóladagsbrauðbollur

Posted on 25/08/201130/12/2012
  • 2 dl volgt vatn
  • 2 msk matarolía
  • ½ tsk salt
  • 25 gr ger (eða hálft bréf af þurrgeri)
  • 4-5 dl hveiti
  • e.t.v. valmúa, eða sesamfræ til að setja ofaná

Hitið ofninn í 250°c.

Hellið vatninu, olíu og salti í skál. Sáldrið gerinu út í og bætið svo 4 dl hveiti út í. Ef notað er þurrger er best að setja fyrst hveiti, salt, og þurrger í skál og síðan bæta vökvanum út í. Hrærið í með sleif (líka hægt að gera í hrærivél).

Bætið við hveiti ef þarf, deigið er tilbúið þegar það sleppir skálinni.

Látið degið hefast  undir klút á volgum stað í 15 mínútur.

Hnoðið deigið upp á nýtt og rúllið því út í jafna lengju sem er síðan skipt í 8 jafnstór stykki.

Mótið hvert stykki í bollu og leggið á bökunarplötuna.

Látið hefast aftur í 15-25 mínútur undir klút á volgum stað. Bollurnar eru fullhefaðar þegar dæld sem myndast eftir fingur fer til baka þegar fingrinum er sleppt.

Ef ætlunin er að hafa fræ ofan á penslið þá bollurnar með eggi og sáldrið fræjum yfir.

Bakið í miðjum ofni í ca 5-10 mínútur, eða þar til bollurnar fá fallegan gulbrúnan lit.

Takið bollurnar út og látið kólna á bökunargrind.

jólabollurnar 2012 voru bornar fram í formi “bollutrés” skreytt með kökuskrauti

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress