Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

fyllt nautahakksrúlla

Posted on 15/10/201227/05/2013

Uppskrift f. 4

  • 600 gr nautahakk
  • 1 msk nautakraftur
  • 1 msk kartöflumjöl
  • 1 tsk salt
  • pipar
  • 1 egg
  • 200-300 gr ferskt brokkolí, skorið smátt
  • ½ dl steinselja, söxuð smátt
  • 3-4 dl rifinn ostur
  • 2-3 msk sojasósa
  • 30 gr smjör, brætt
  • 1-2 dl rjómi eða mjólk
  • 1 msk hveiti eða sósujafnari
  • 2 tsk rifsberjahlaup

Ofninn er hitaður í 180 gráður. Nautahakki, nautakrafti, kartöflumjöli, salt, pipar og eggi hrært saman í skál.

Hakkið flatt út í ferning á smjörpappír. Brokkolí, steinselju og rifnum osti dreift yfir. Með hjálp smjörpappírsins er hakkinu rúllað upp eins og rúllutertu.
Rúllan er færð yfir í eldfast mót.
Bræddu smjöri og sojasósu blandað saman og helt yfir rúlluna.
Hitað í ofni í ca. 30-45 mínútur, fer allt eftir þykkt rúllunnar.

Þegar rúllan er elduð í gegn er hún tekin úr eldfasta mótinu og sett undir álpappír. 2-3 dl af vatni er hellt út í eldfasta mótið sem er sett aftur inn í ofninn og hann stilltur á grill. Þegar vökvinn fer að sjóða eftir nokkrar mínútur er honum hellt yfir í pott og 1-2 dl af rjóma eða mjólk hellt út í. Sósan er svo þykkt með hveitijafningi (smá vatn og hveiti hrist eða hrært saman) eða sósujafnara. Rifsberjahlaupi er að lokum bætt út í sósuna og hún smökkuð til með salti og pipar.

Borið fram með til dæmis kartöflumús, salati og rifsberjahlaupi

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress