Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

Alvöru pönnukökur

Posted on 28/01/200626/01/2010

Alvöru Íslenskar pönnukökur

  • 3dl hveiti
  • 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 – 2 msk sykur
  • 1/4 tsk salt
  • 1-2 egg
  • 4-5 dl mjólk
  • 25 gr smjörlíki eða 2 msk olía
  • 1/4 tsk vanilludropar
  • Smjörlíkið er brætt og látið kólna. Þurrefnin sigtuð saman í skál. Helmingnuum af mjólkinni er bætt út í og hrært vel í kekkjalausan jafning. Eggið/in er látið í, síðan það sem eftir er af mjólkinni ásamt dropunum. Smjörlíkinu er hrært saman við.

    Pannan er hituð á miðstraum. Pönnukökunar losna svo auðveldlega frá pönnunni að hægt er að snúa þeim í loftinu.

    Íslenskar pönnukökur eru bestar nýbakaðar með sykri eða sultu og þeyttum rjóma.

    Verði ykkur að góðu!

    9 thoughts on “Alvöru pönnukökur”

    1. Hildur says:
      17/02/2008 at 5:44 pm

      jésus hvað þetta er hallærislegt, ég á þessa uppskrift uppí skáp, hún fylgdi með pönnukökupönnu sem ég keypti í kringlunni!

      Reply
    2. dagný ásta says:
      17/02/2008 at 6:45 pm

      heh, það má velvera – ég fékk hana hinsvegar uppskrifaða frá vinkonu minni – get lítið að því gert þótt aðrir fái uppskriftir annarstaðar frá…

      Reply
    3. Dísa says:
      27/10/2008 at 8:13 pm

      takk;o) fannst æðislegt að geta fundið þessa uppskrift á netinu þar sem ég næ ekki í mömmu í augnablikinu og gat enganvegin munað þetta;o)

      Reply
    4. Dagný Ásta says:
      27/10/2008 at 8:16 pm

      haha, minnsta málið 🙂
      njóttu!

      Reply
    5. jenný- sem át pönnukökurnar hennar dísu ! says:
      30/06/2009 at 4:15 pm

      fannst pönnukökurnar æðislegar og fljótlega gerðar ! namm ^^

      Reply
    6. Sigurður Atlason says:
      22/10/2011 at 10:05 am

      Þetta eru æðislegar pönnukökur. 🙂 Takk fyrir ig.

      Reply
      1. Kjánaprikin says:
        23/10/2011 at 4:54 pm

        njóttu vel 🙂

        Reply
    7. Marta says:
      18/02/2012 at 1:42 pm

      Takk æðjslega! Ég bý í ameríku og var algjörpega búin að gleima þessu.

      Reply
      1. Kjánaprikin says:
        20/02/2012 at 9:42 am

        Frábært!

        Reply

    Leave a Reply to Kjánaprikin Cancel reply

    Your email address will not be published. Required fields are marked *

    ©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress
    Menu
    Uppskriftasafn
    • Home
    • Um síðuna
    • Flokkar