Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

Bounty kaka

Posted on 11/08/201225/08/2019
  • 6 stk eggjahvítur
  • 3 dl sykur
  • 270gr kókosmjöl

Þeytið eggjahvítur og blandið sykri saman við smá og smá í einu. Stífþeytið (í ca 10min).
Blandið kókosmjölinu samanvið með skeið/sleikju.
Setjið degið í 2 form og bakið við 200°C í 20 mín í miðjum ofni.

Kælið

Krem:

  • 300gr suðusúkkulaði
  • 100gr smjör
  • 6 stk eggjarauður
  • 100gr flórsykur

Bræðið smjör og suðusúkkulaði saman (gott að bræða í vatnsbaði og hræra af og til í).
Þeytið eggjarauður og flórsykur mjög vel saman. Þvínæst er smjörsúkkulaðiblöndunni bætt varlega við og hrært eins lítið og mögulegt er.

Smyrjið á kalda botnana.

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress