Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

Category: auðvelt

Möndlukaka með stikilsberjum

Ég er alltaf að leita uppi leiðir til þess að nýta það sem garðurinn í Birtingaholtinu er að gefa… núna er mikið af stikilsberjum og fann ég þessa köku hjá Frk Kræsingar – mjög ljúffeng! Byrjum á því að hreinsa stikilsberin (taka stönglana og brúnu endana á botninum af) og skera þau í tvennt langsum…

Kleinurnar hennar mömmu

Mamma lumar á mörgum góðum uppskriftum sem hún hefur sankað að sér í gegnum árin. Okkur Ásu Júliu þykir mjög vænt um þær stundir sem við höfum átt með m/ömmu undanfarin ár þar sem hún er búin að græja kleinudeig og Ása Júlía tekur að sér að skeraogsnúa á meðan við mamma skiptumst á að…

Hjónabandsælan hennar mömmu

Mamma gerir bestu hjónabandssælu í heimi – kalt mat! Iðulega ef hún er að baka eitthvað og er “búin að hita ofninn” þá klárar hún baksturstörnina á að skella í eina tvær hjónabandssælur 🙂 Reyndar þá er það auðvitað málið að uppskriftin hennar passar fullkomnlega í 2 26cm form 😉 Skemmir auðvitað ekki heldur að…

hakkréttur frá Vesselu

Fyrir nokkrum árum var ákveðið á leikskólanum hjá eldri dótturinni að kynna fyrir börnunum hin ýmsu lönd bæði með smá fræðslu og þjóðlegum mat. Á þeim tíma voru þónokkuð mörg þjóðerni tengd leikskólanum, bæði börn og kennarar (held reyndar að það hafi lítið breyst). Allavegana, Vessela sem var einn af kennurunum þá eldaði rétt sem…

Hunangskjúklingur með kartöflum

Alltaf gott að fá smá tilbreytingu frá “vananum” hvað varðar kjúklingarétti – finnst ég alltaf vera með sömu réttina aftur og aftur 😉 Þessi kom á óvart og kannski í það mesta hunangsbragðið að setja fullar 3 matskeiðar af hunangi en krakkarnir voru sáttir og borðuðu vel. Þegar það gerist þá er ég sátt 🙂…

Pastaréttur að Norðan

Þetta nafn… Fátt hægt að segja til um það annað en að grunnurinn er fenginn þegar ég var í heimsókn hjá vinkonu minni á Akureyri fyrir MÖÖÖÖÖRGUM árum 🙂 Annars finnst mér fínt að kalla þetta líka, taka til í ísskápnum pastaréttur enda eru þeir yfirleitt eitthvað í ætt við þetta 😉  Í þetta sinn átti…

skinku og grænmetisbaka

Bökur eru ó svo einfaldar – sérstaklega þegar letin tekur öll völd og keypt er útflatt deig í búðinni svo að það eina sem þarf að gera er að ákveða hvað á að fara út í eggjahræruna. Þetta er frekar basic og hægt að setja allskonar út í fyllinguna.  í þetta sinn var það einskonar…

Blóðugt poppkorn

Hjá 2 eldri börnunum hefur verið hefð fyrir því að halda bekkjarpartý með hrekkjavökuþema dagana í kringum hrekkjavökuna. Þá er mælst til þess að allir komi með eitthvað smá á samskotsborð sem að sjálfsögðu er alltaf með ALLTOF miklum veitingum þar sem jú þetta eru um 60 krakkar í hvorum árgangi. Hvað um það, bara…

Döðlupestó ala Guðleif

Guðleif í vinnunni hjá mér kemur gjarnan með þessa útgáfu af pestói þegar hún sér um föstudagskaffið. Syndsamlega gott og klárast alltaf! 1 og 1/2 dl saxaðar döðlur 1 og 1/2 dl brotnar cashewhnetur 1/2 krukka fetaostur og smá af olíunni með 3/4 – 1 krukka rautt pestó (ég smakka bara til og bæti við…

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • …
  • 7
  • Next
©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress