Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

Risaeðlukonfekt

Posted on 05/11/201019/12/2018

Kartöflukonfekt með piparmintubragði

  • 1 meðalstór soðin kartafla
  • 500-600gr. Flórsykur
  • Piparmintudropar eftir smekk (hér má skipta piparmintunni út fyrir annarskonar bragðefni eins og t.d. banana, appelsínu eða hverju sem hugurinn girnist.
  • hindberjadropar
  • bananadropar
  • piparmintudropar

Hjúpur:  Suðusúkkulaði og Kókosmjöl

Hnoðið saman kartöflunni og flórsykrinum.  Blandið piparmyntudropunum saman við og smakkið á milli.
Gaman er að setja örlítinn matarlit saman við (t.d. grænan með mintunni, gulan með banana og svo frv..

Mótið hæfilega stórar kúlur úr deiginu og setjið á bökunarpappír.  Hjúpið kúlurnar með suðusúkkulaðinu og veltið e.t.v. upp úr kókos

ATH: að deigið er mjög fljótt að stífna og því þarf að móta kúlurnar fljótt.

Fann þessa á netinu haust ’10

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress