Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

Marmarakaka ala amma Þura

Posted on 29/05/200819/02/2019

Þegar ég var lítil var amma alltaf með eitthvað heimabakað gotterí í boði.. oftar en ekki var það marmarakaka og vekur það því smá nostalgíu hjá mér að baka eina slíka.

Uppskriftin hennar ömmu hljómar svona:

  • 150gr smjör eða smjörlíki við stofuhita
  • 1,5dl sykur
  • 4 lítil egg
  • 5 dl hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2 dl mjólk

Kakódeigið
1/3 af hvíta deiginu tekinn til hliðar og bætt við:

  • 4 tsk kakó
  • 2 tsk sykur
  • 1,5-2 msk vatn

Aðferð:
Egg og sykur þeytt þar til létt og ljóst, því næst er því sem eftir er á listanum bætt við og blandað vel.

Taktu þriðjung af kökudeiginu, láttu það í sér skál  og bættu við það kakói, sykri og vatni. Þá ertu komin með brúnt kakódeig.

Helmingur hvítadeigsins sem eftir er í smurt mót og þá kakódeigið og efst afganginn af hvíta deiginu.

Bakaðu kökuna neðst í ofni við 175°c í 35-45 mín.

Þessi er úr uppskriftasafninu hennar ömmu Þuru (Þuríður Ágústa Símonardóttir)

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress