Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar
Uppskriftasafn

Appelsínutrufflur

Posted on 10/11/200730/10/2018

Hráefni:

  • 200 g Síríus rjómasúkkulaði
  • 150 g Síríus rjómasúkkulaði með appelsínubragði
  • 1 dl rjómi
  • 2 msk. smjör
  • 1 1/2 tsk. rifið hýði af appelsínu (ef vill má sleppa þessu og setja líkjör í staðinn, t.d. Grand mariner)

Hitið rjómann að suðu, lækkið hitann, bætið súkkulaðinu út í og þeytið. Bætið smjörinu og appelsínuhýðinu út í, kælið.

Setjið trufflurnar í konfektform eða mótið kúlur. Ef kúlur eru gerðar þá er gott að hjúpa kúlurnar með súkkulaði eða velta þeim upp úr kakói og kókómalti. (U.þ.b. 50 stk.)

Man ekkert hvar ég fann þessa uppskrift á sínum tíma  en ég, Iðunn & Linda gerðum þessa uppskrift fyrir jólin ’04

©2025 Uppskriftasafn | Powered by SuperbThemes & WordPress
Menu
Uppskriftasafn
  • Home
  • Um síðuna
  • Flokkar